Gaman af því að espa fólk aðeins upp
Þorvaldur Örn Þorvaldsson hefur vakið athygli fyrir fagnaðarlæti sín í Póllandi og sussaði hann t.a.m. á stuðningsmenn Pelister á dögunum. Ljósmynd/Wybrzeze Gdansk
„Fyrstu mánuðirnir hafa verið krefjandi. Þetta er mikil breyting frá því að vera í handboltanum á Íslandi,“ sagði Þorvaldur Örn Þorvaldsson, handboltamaður hjá Wybrzeze Gdansk í Póllandi, í samtali við Morgunblaðið.
„Þetta er miklu stærra prógramm, meiri tími sem fer í þetta en líka mjög skemmtilegt að mörgu leyti,“ bætti hann við.
Þorvaldur er í fyrsta sinn í atvinnumennsku erlendis eftir að hafa leikið með Val. Hann vakti athygli hjá pólska félaginu þegar hann lék með íslenska U21 árs landsliðinu í Póllandi sumarið 2025.
„Aðstoðarþjálfari liðsins var í pólska þjálfarateyminu. Við spiluðum á móti þeim og hann sá mig þar. Umboðsmaðurinn minn hefur líka tengsl inn í félagið og þekkir vel til. Hann var meðal annars með fráfarandi línumann liðsins. Mér var boðið að koma í prufu í janúar í landsliðshléinu. Mér leist vel á, fékk samningstilboð eftir það og ákvað að slá til,“ útskýrði Þorvaldur.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗