Hljómar ekkert eðlilega vel

Guðný Árnadóttir er klár í slaginn fyrir umspilsleikina.

Guðný Árnadóttir er klár í slaginn fyrir umspilsleikina. mbl.is/Karítas

Guðný Árnadóttir hefur ekki gleymt tapinu gegn Portúgal í umspili síðasta heimsmeistaramóts í fótbolta. Hún vill nú fagna sæti í lokakeppninni þegar liðin mætast aftur í umspili.

Ísland freistar þess nú að komast í fyrsta sinn á HM, sem verður haldið í Brasilíu, en leikirnir við Portúgal verða í byrjun næsta mánaðar.

„Maður gleymir því ekki. Það er tilviljun að þetta sé aftur Portúgal en við munum eftir þessu og viljum ekki lenda í því aftur. Það er aðallega það, sama hver andstæðingurinn er,“ sagði Guðný í samtali við Morgunblaðið.

Hún sagði löngunina til að fara alla leið mikla og hlakkaði til að koma inn í landsliðshópinn.

„Við ætlum að vera hinum megin núna og komast alla leið. Við höfum tvisvar verið rosalega nálægt því og vitum að við getum þetta.“

Guðný sneri aftur til keppni í september eftir barnsburð og hefur nú verið kölluð á ný í landsliðið.

„Það er bara eitt markmið. Ég veit hvað allir vilja þetta mikið og hlakka til að sjá það í verki.

HM í Brasilíu hljómar ekkert eðlilega vel. Ég held að það séu fleiri en bara leikmenn liðsins sem langar að fara alla leið.“

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab