Kalkúnaveisla fyrir þakkargjörðarhátíðina
Berglind Hreiðarsdóttir býður upp á kalkúnaveislu með sætkartöflumús, brauðfyllingu, sveppa- og piparostasósu og trönuberjamauki. Ljósmynd/Aðsend
Þakkargjörðin verður haldin hátíðlega á fimmtudaginn og af því tilefni býður Berglind Hreiðarsdóttir hjá Gotterí og gersemum upp á kalkúnaveislu með öllu tilheyrandi. Uppskriftirnar eru unnar í samstarfi við Hagkaup, þar sem allt hráefnið fæst.
Á matseðlinum er safaríkt smjörsprautað kalkúnaskip, sætkartöflumús með stökkum pekanhnetuhjúp og rjúkandi sveppa- og piparostasósa. Gular baunir og trönuberjamauk fullkomna veisluna.
Smjörsprautað kalkúnaskip frá Hagkaup sem sló í gegn hjá Berglindi og gestum hennar. Ljósmynd/Aðsend
Berglind hefur prófað ófáar aðferðir við eldun á kalkúni og kalkúnabringum en segir kalkúnaskipið hafa slegið sérstaklega í gegn.
„Ef ég á að vera hreinskilin held ég að þetta sé nýja uppáhaldskalkúnakjötið mitt. Þetta smjörsprautaða kjöt var svo djúsí og gott. Allir voru sammála um það sem smökkuðu kalkúninn,“ segir Berglind.
Kalkúnaskip og meðlæti
Fyrir 8–10 manns.
Smjörsprautað kalkúnaskip
-
1 smjörsprautað kalkúnaskip frá Hagkaup, um 3 kg
Aðferð
- Hitið ofninn í 180 °C.
- Takið kalkúnaskipið úr umbúðunum og setjið á ofnskúffu. Sé það frosið þarf það að vera alveg þiðnað fyrir eldun.
- Eldið samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum og fylgist með kjarnhitanum með kjöthitamæli. Mælið í þykkasta hluta bringunnar án þess að mælirinn snerti bein. Kjarnhitinn þarf að ná 70°C og haldast þar í að minnsta kosti tvær mínútur.
- Breiðið álpappír lauslega yfir þegar um klukkustund er liðin af eldunartímanum svo skinnið verði ekki of dökkt.
- Látið kalkúnaskipið standa í að minnsta kosti 15 mínútur áður en það er skorið.
Berglind eldaði tæplega 3 kg kalkúnaskip í eina klukkustund og 50 mínútur. Eldunartíminn getur verið breytilegur eftir ofnum og því er mikilvægt að láta kjarnhitann ráða. Ljósmynd/Aðsend
Sætkartöflumús með pekanhnetuhjúp
- 4–5 sætar kartöflur
- ½ tsk. salt
- 3 msk. smjör, við stofuhita
- 2 egg, pískuð
- 1 tsk. vanilludropar
- ½ tsk. kanill
- 100 g sykur
- 2 msk. rjómi
Stökkur hjúpur
- 60 g hveiti
- 60 g smjör, við stofuhita
- 40 g púðursykur
- 20 g hvítur sykur
- 50 g pekanhnetur, saxaðar
Aðferð
- Hitið ofninn í 180 °C.
- Afhýðið sætu kartöflurnar og skerið í bita. Sjóðið þar til þær eru mjúkar og hellið vatninu af.
- Setjið kartöflurnar í hrærivélarskál ásamt salti, smjöri, eggjum, vanilludropum, kanil, sykri og rjóma. Blandið saman og setjið í eldfast mót.
- Útbúið hjúpinn með því að blanda saman hveiti, smjöri, púðursykri og hvítum sykri.
- Dreifið deiginu jafnt yfir músina og stráið pekanhnetunum yfir.
- Bakið í um 20 mínútur eða þar til hjúpurinn er farinn að gyllast.
Kalkúnafylling sem meðlæti
- 1 pakki Stonewall Kitchen Stuffing Mix
- 150 g smjör
- 1 laukur
- 100 g gulrætur
- 600 ml kjúklingasoð
- Salt og pipar, eftir smekk
Aðferð
- Saxið laukinn og rífið gulræturnar.
- Bræðið smjörið á pönnu og steikið grænmetið þar til það fer að mýkjast. Kryddið með salti og pipar.
- Hellið kjúklingasoðinu á pönnuna og bætið fyllingarblöndunni saman við.
- Látið brauðmolana draga í sig vökvann í um fimm mínútur.
- Færið yfir í eldfast mót og bakið við 180°C í 20–30 mínútur.
Sveppa- og piparostasósa
- 1 pakkning piparostarjómasósa frá Íslandssósum
- 300 g sveppir að eigin vali
- 50 g smjör
- 300 ml rjómi
- Um 1 msk. fljótandi nautakraftur, eða eftir smekk
- Salt og pipar, eftir smekk
Aðferð
- Skerið sveppina og steikið upp úr smjörinu. Kryddið með salti og pipar eftir smekk.
- Hellið piparostarjómasósunni saman við ásamt rjómanum og hitið.
- Bætið nautakraftinum saman við og smakkið til með salti og pipar.
Með á borðið
- Gular baunir
- Stonewall Kitchen Traditional Cranberry Spread, trönuberjamauk
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/48/1694819.jpg)


