Burger King: Taka tvö
Egill Ágústsson, framkvæmdastjóri Íslensk-ameríska verslunarfélagsins, Ævar Olsen, rekstrarstjóri Burger King, og Guðmundur Skarphéðinsson fjármálastjóri gæða sér á hamborgara í útibúi Burger King í Smáralind árið 2004. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Ætla má að margir hamborgaraunnendur landsins hafi fagnað þegar fréttir um endurkomu veitingastaðarins Burger King til Íslands bárust í morgun.
Til stendur að fyrsti staðurinn verði opnaður í vor á þjónustustöð N1 við Bíldshöfða í Reykjavík.
Þá er undirbúningur að opnun fleiri veitingastaða sagður þegar hafinn og frekari áforma þess efnis að vænta.
Fyrsta íslenska Idol-stjarnan, Kalli Bjarni, fékk sér stóran bita af vænum borgara eftir að hafa klippt á borðann og opnað formlega nýjan Burger King-veitingastað í Smáralindinni þann 18. febrúar 2004. mbl.is/Jim Smart
Spennandi viðbót við flóru skyndibitastaða
Burger King hefur áður verið með útibú á Íslandi en veitingastaðurinn var fyrst opnaður í Smáralind þann 18. febrúar 2004.
Vakti það athygli á sínum tíma þegar einkahlutafélagið Tankurinn ehf. auglýsti eftir störfum rekstrar- og vaktstjóra veitingastaðarins í Morgunblaðinu. Tankurinn var í eigu sömu aðila og ráku veitingastaðinn TGI Fridays í Smáralind, þ.e. Íslensks ameríska ehf., Gunnars og Gylfa ehf. og Ágústs Ármanns.
Í frétt Morgunblaðsins frá 15. ágúst 2003 segir:
„Egill Ágústsson, framkvæmdastjóri Íslensk ameríska, segist hafa fundið fyrir miklum áhuga á Burger King og greinilegt sé að þessi keðja verði „spennandi viðbót“ við flóru skyndibitastaða á Íslandi. „Ef móttökur Íslendinga verða jákvæðar eru áform um frekari uppbyggingu á næstu árum. Það tók mörg ár að fá leyfið og þurfti að uppfylla ströng skilyrði áður en það var veitt.““
Frá einum í þrjá í engan
Þann 16. desember 2004 var opnað annað útibú Burger King á landinu í þjónustustöð Essó í Ártúnsholti, þar sem nú er N1.
Þann 25. júní 2005 var opnað þriðja og, þar til á næsta ári, síðasta útibú veitingastaðarins í þjónustustöð Essó á Kringlumýrarbraut 100.
Á Íslandi notaðist Burger King meðal annars við slagorðin „Eldsteikt er ekta“ og „Þitt er valið“.
Tilvonandi viðskiptavinir vonast eflaust til þess að gamla verðlagið snúi aftur með keðjunni en samkvæmt auglýsingu Burger King frá byrjun árs 2006 kostaði tvöföld ostborgaramáltíð 599 krónur og stakur hamborgari litlar 139 krónur.
Hætti starfsemi 2008
Burger King hætti starfsemi á Íslandi þann 30. desember 2008, tæpum þremur mánuðum eftir efnahagshrunið, og lokaði öllum stöðum sínum.
Af eldri fréttaflutningi að dæma má fullyrða að ástand á rekstrinum hafi verið erfitt þar sem miklar kvaðir voru á innflutningi.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

