Þessir réttir eiga að koma Íslandi á toppinn

Hnúðkál í hátíðarbúningi er meðal þess sem íslenska kokkalandsliðið teflir fram á síðari keppnisdegi sínum á HM í Lúxemborg í dag. Hálendið veitir innblástur að matseðlinum, þar sem vandað handbragð nýtur sín í hverju smáatriði. Ljósmynd/Eyþór Árnason

Íslenska hálendið er leiðarstefið þegar kokkalandsliðið leggur á borð á síðari keppnisdegi sínum á heimsmeistaramótinu í matreiðslu í Lúxemborg í dag. Hér birtast myndir af nokkrum réttanna, þar á meðal köldu hátíðarfati með fiski, heitum veganmillirétti og mjólkurbrauði með viðbiti sem sækir bragð til íslenskra matarhefða.

Liðið hlaut gull fyrir þriggja rétta kvöldverð á laugardaginn. Nú tekur við Chef’s Table, keppnisgrein þar sem boðið er til hátíðlegrar máltíðar og liðsmenn kynna réttina og hugmyndina að baki þeim.

Kalda hátíðarfatið er einn liður þeirrar máltíðar. Samkvæmt reglum mótsins á það að innihalda fisk eða sjávarfang í tveimur útfærslum, ásamt meðlæti og sósum. Heitur jurtaréttur er sérstakur milliréttur og síðar kemur heitur kjötaðalréttur. Myndirnar hér sýna því hluta þess sem íslenska liðið teflir fram í dag. 

Á kalda hátíðarfatinu eru bleikja gljáð með dashi og svartri sítrónu og reykt ýsa með fenníku, sellerírót og epli. Piparrótarsósa og kryddjurtafleyti fylgja ásamt fjölbreyttu meðlæti. Ljósmynd/Eyþór Árnason

Tengsl lands og þjóðar

Víðáttan, einangrunin og andstæðurnar á íslenska hálendinu liggja að baki hugmyndavinnu liðsins. Í kynningu þess er landslaginu lýst sem heimi mótuðum af eldi, ís, vindi og vatni, sem hefur í gegnum kynslóðir ögrað Íslendingum og veitt þeim innblástur.

Þessi tengsl lands og þjóðar vill liðið kanna í gegnum matinn. Hráefnin, handbragðið og munirnir sem fylgja framreiðslunni eiga hvert með sínum hætti að segja sögu um upprunann.

Íslensk náttúra veitir innblástur að þessum einstaklega glæsilega aðalrétti sem kokkalandsliðið teflir fram í dag. Ljósmynd/Eyþór Árnason

Tvær útfærslur af fiski

Á kalda hátíðarfatinu er bleikja gljáð með dashi og svartri sítrónu. Með henni er agúrka með kóríander og límónu, radísur og silungshrogn. Piparrótarsósa fylgir.

Hin útfærslan er reykt ýsa með fenníku, sellerírót og epli. Stökkt bókhveiti og smá súra fullkomna réttinn sem er borinn fram með kryddjurtafleyti.

Bleikja og reyktur hvítfiskur af kalda hátíðarfatinu, fallega fram borin með fjölbreyttu grænmetismeðlæti, piparrótarsósu og kryddjurtafleyti. Ljósmynd/Eyþór Árnason

Hnúðkál með baunum og morkilsveppum

Í heita veganmilliréttinum fær hnúðkál aðalhlutverkið. Það er gufusoðið og fyllt með ragú úr grænum baunum og morkilsveppum.

Með því eru dill- og tófúfleyti, súrsaðar gulrætur og gnocchi úr gulrófum. Sósa úr gerjuðum hvítum aspas fylgir. Sama hráefnið birtist þannig í ólíkum myndum og aðferðirnar fá að njóta sín.

Gufusoðið hnúðkál fyllt með ragú úr grænum baunum og morkilsveppum. Með fylgja gulrófur í tveimur útfærslum, dill- og tófúfleyti og sósa úr gerjuðum hvítum aspas. Ljósmynd/Eyþór Árnason

Þurrkaður steinbítur í smjörinu

Íslenskt mjólkurbrauð er borið fram með tvenns konar viðbiti. Annars vegar er þeytt smjör með þurrkuðum steinbít og sólblómafræjum og hins vegar kjúklingalifrarmús með rjómaosti og rauðberjasultu.

Þar fær kunnuglegt hráefni nýtt hlutverk við hátíðarborðið.

Íslenskt mjólkurbrauð með þeyttu smjöri með þurrkuðum steinbít og sólblómafræjum ásamt kjúklingalifrarmús með rjómaosti og rauðberjasultu. Ljósmynd/Eyþór Árnason

Handverk Aldísar Báru myndar umgjörðina

Leirlistakonan Aldís Bára Einarsdóttir gerði stærstan hluta borðbúnaðar íslenska liðsins. Við framreiðslu sumra réttanna er þó skylt að nota borðbúnað frá RAK Porcelain. Handverk hennar myndar því umgjörð um réttina og verður hluti af þeirri sögu sem liðið segir við borðið.

Aldís Bára hefur meðal annars gert handgerða diska fyrir ÓX. Nú er matur íslenska kokkalandsliðsins borinn fram á verkum hennar á heimsmeistaramótinu í Lúxemborg. 

Leirlistakonan Aldís Bára Einarsdóttir gerði stærstan hluta borðbúnaðar kokkalandsliðsins. Handverk hennar myndar glæsilega umgjörð um keppnisréttina. Ljósmynd/Aðsend

Gullið þegar í höfn

Gullverðlaunin frá laugardeginum eru þegar í höfn en verkefni dagsins vegur jafnt á við fyrri keppnisgreinina við ákvörðun lokasætis. Samanlögð stig úr Chef’s Table og Restaurant of Nations ráða því hvar íslenska liðið endar á heimsmeistaramótinu.

Stökkt bókhveiti og smásúra prýða meðlætið á kalda hátíðarfatinu, þar sem hvert smáatriði í framsetningunni fær að njóta sín. Ljósmynd/Eyþór Árnason

Fjórir litlir smakkréttir verða bornir fram í dag.

Fjórir litlir smakkréttir verða bornir fram í dag. Ljósmynd/Eyþór Árnason

Bleikja gljáð með dashi og svartri sítrónu er önnur tveggja fiskútfærslna á kalda hátíðarfati kokkalandsliðsins. Ljósmynd/Eyþór Árnason

Gufusoðið hnúðkál fyllt með grænum baunum og morkilsveppum, borið fram með gulrófum í tveimur útfærslum, dill- og tófúfleyti og sósu úr gerjuðum hvítum aspas. Ljósmynd/Eyþór Árnason

Eftirrétturinn er glæsilegur, en Wiktor Pálsson hefur yfirumsjón með eftirréttum íslenska kokkalandsliðsins. Ljósmynd/Eyþór Árnason

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab