Ný gögn um söluáform FIFA
Hætt var við áform FIFA um að selja hlut í viðskiptastarfsemi sinni en þau hefðu getað fært dótturfélagi réttindi að knattspyrnumótum sambandsins, þar á meðal heimsmeistaramótinu, til allt að 96 ára. Þetta kemur fram í gögnum sem The Guardian hefur séð.
Fyrirhugað félag var metið á 20 milljarða dollara. Samkvæmt hvatakerfi hefðu stjórnendur þess getað fengið allt að 5% af því virði sem færi umfram þetta upphaflega verðmat.
FIFA neitaði því að forsetinn Gianni Infantino, sem átti að verða stjórnarformaður dótturfélagsins, hefði getað hagnast persónulega á áformunum.
„Hugsanlegt hvatakerfi var eingöngu ætlað stjórnendum FFE, en embættismenn FIFA hefðu ekki getað verið í þeim hópi,“ sagði talsmaður FIFA við The Guardian.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗