Freyr nálgast Swansea

Freyr Alexandersson nálgast Swansea.

Freyr Alexandersson nálgast Swansea. Ljósmynd/Brann

Freyr Alexandersson, þjálfari Rosenborg og fyrrverandi þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, er líklegastur til að taka við Swansea City eftir að hafa átt í viðræðum við velska félagið, samkvæmt Telegraph.

Swansea er í Wales en spilar í ensku deildakeppninni. Liðið er sem stendur í áttunda sæti B-deildarinnar.

Swansea leitar að eftirmanni Vítor Matos, sem fór til franska félagsins Strasbourg í síðustu viku. Ashley Williams, fyrrverandi varnarmaður Swansea, stýrir liðinu tímabundið.

Freyr, sem er 44 ára, hefur stýrt Rosenborg í baráttu um Evrópusæti í Noregi en liðið var í miklu basli áður en Íslendingurinn tók við. Hann hefur áður m.a. þjálfað Lyngby í Danmörku, Kortrijk í Belgíu og Brann í Noregi.

Í ráðningarferli Swansea kemur Jamestown Analytics að málum, fyrirtæki sem hefur náin tengsl við Tony Bloom, eiganda Brighton, og aðstoðar við að finna efnilega þjálfara.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab