Neymar sakaði dómarana um svindl
Brasilíska stjarnan Neymar gagnrýndi dómgæsluna í brasilískum fótbolta eftir að Santos tapaði 2:0 á heimavelli gegn Grêmio í efstu deild í nótt.
„Þetta er óásættanlegt og ég veit ekki hversu lengi ég get þolað þetta áður en ég missi stjórn á skapi mínu,“ sagði hann samkvæmt Globo.
„Það hefur verið svindlað á okkur í nokkrum leikjum og enginn gerir neitt í því. Ég er orðinn þreyttur á að kvarta í sífellu. Einhver sem hefur völd verður að gera eitthvað.“
Neymar fullyrti að brotið hefði verið á honum tíu sinnum í fyrri hálfleik. Francis Amuzu og Martin Braithwaite skoruðu fyrir Grêmio. Santos situr nú í níunda sæti deildarinnar eftir leikinn.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗