Dregið um miða á landsleikinn mikilvæga

Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur mæta Portúgal í umspilinu.

Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur mæta Portúgal í umspilinu. mbl.is/Eyþór

Eftirspurn eftir miðum á leik Íslands og Portúgals í umspili um sæti á HM kvenna í fótbolta er langt umfram sætaframboð á Laugardalsvelli. KSÍ greindi frá þessu í tilkynningu en aðgangur að leiknum er ókeypis.

Fyrsta úthlutun hefst í dag. Áður en dregið verður úr hópi þeirra sem óskuðu eftir miðum þarf sambandið að tryggja miða fyrir meðal annars aðildarfélög, bakhjarla og leikmenn beggja liða. Ekki verður hægt að verða við öllum miðabeiðnum.

Þeir sem fá miða fá ákveðinn frest til að sækja þá. Ósóttir miðar verða boðnir öðrum og því eiga þeir sem fá ekki miða í fyrstu úthlutun enn möguleika.

KSÍ þakkaði fyrir áhugann og stuðninginn við landsliðið. Markmiðið væri að allir úthlutaðir miðar yrðu nýttir þegar liðin mætast.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab