Senegal Afríkumeistari eftir allt

Mikill hiti var í úrslitaleiknum.

Mikill hiti var í úrslitaleiknum. AFP/Abdel Majid Bziouat

Senegal hefur á ný verið úrskurðað Afríkumeistari í knattspyrnu eftir að Alþjóðaíþróttadómstóllinn (CAS) féllst einróma á áfrýjun senegalska sambandsins.

Senegal vann Marokkó 1:0 eftir framlengingu í úrslitaleiknum í janúar, en Knattspyrnusamband Afríku dæmdi Marokkó síðar 3:0-sigur þar sem leikmenn Senegal höfðu tímabundið gengið af velli í mótmælaskyni við vítaspyrnudóm.

CAS úrskurðaði að ákvörðun um að hefja leikinn á ný hefði alfarið verið í höndum dómarans. Reglurnar um að dæma liði tap giltu aðeins þegar leik væri endanlega hætt, sem hefði ekki gerst.

Eftir að Senegal sneri aftur til leiks varði markvörðurinn Édouard Mendy vítaspyrnu Brahims Díaz áður en Pape Gueye skoraði sigurmarkið í framlengingunni.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab