Edda stýrir fríhöfninni
Edda Blumenstein hefur verið ráðin forstjóri fríhafnarverslunarinnar Ísland Duty Free á Keflavíkurflugvelli og mun taka við stöðunni í apríl á næsta ári.
Ísland Duty Free er að fullu í eigu þýska stórfyrirtækisins Gebr. Heinemann.
Í tilkynningu er sagt að Edda búi yfir yfirgripsmikilli reynslu af íslenskri smásölu, viðskiptalífi og fræðastarfi. Sem stjórnarmaður í Festi hf. og stjórnarformaður bæði Útilífs og Rannsóknaseturs verslunarinnar (RSV) hafi hún öðlast víðtæka innsýn í íslenskan verslunarrekstur þar sem þjónusta og upplifun viðskiptavina séu í öndvegi.
„Samhliða störfum sínum í atvinnulífinu gegnir hún stöðu lektors við Háskólann á Bifröst. Edda þekkir starfsemi Ísland Duty Free vel af eigin raun, en hún starfaði sem ráðgjafi við mótun fimm ára stefnu fyrirtækisins og átti í því starfi náið samráð við yfir 60 starfsmenn, birgja og samstarfsaðila,“ segir í tilkynningunni.
Djúpur skilningur
„Við stefnumótunarvinnuna kynntist ég starfsfólki Ísland Duty Free og starfsemi fyrirtækisins mjög vel. Ég öðlaðist djúpan skilning á starfseminni og ber mikla virðingu fyrir því starfi sem þar fer fram. Ég hlakka mikið til að móta næsta kafla með teyminu, þar sem við leggjum ríka áherslu á íslenskar rætur okkar, samstarfsaðila og viðskiptavini,“ segir Edda í tilkynningunni.
Liam Grundy fráfarandi forstjóri segir að Edda þekki fyrirtækið og starfsfólkið nú þegar mjög vel og hann sé sannfærður um að hún sé rétta manneskjan til að leiða Ísland Duty Free inn í framtíðina.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗