Góðir stjórnarhættir eða bein lína í Hvíta húsið?

Lars Christensen segir þá tegund opinberra afskipta sem Trump-stjórnin beitir vera pólitískan kapítalisma og ekki eiga skylt við frjálsan markað. AFP/Kent Nishimura

Það fór ekki fram hjá mörgum að bandaríski tæknirisinn Nvidia endurréð Jensen Huang sem forstjóra félagsins, ellefu dögum eftir að hann hætti sem forstjóri. Fjárfestar tóku gleði sína við þessi tíðindi og hækkuðu bréf félagsins um rúmlega 30% í viðskiptum í gær.

Slík hækkun jafngildir um 123 þúsund milljörðum, eða um 25-faldri landsframleiðslu Íslands. Áður höfðu bréf félagsins hrapað í verði þegar Huang hafði sagt upp.

Sumir hafa efasemdir um að slík verðmæti geti legið á bak við það hversu öflugur stjórnandi Huang sé og að annað liggi að baki. Einn þeirra er danski hagfræðingurinn Lars Christensen sem varð frægur hér á landi fyrir að hafa varað við bankahruninu með nokkrum fyrirvara þegar fáir vildu hlusta.

Hækkunin skýrist af pólitískum aðgangi

Christensen segir ástæðu þessarar miklu hækkunar aðallega liggja í aðgangi Huang að valdhöfum í Bandaríkjunum, en Huang og Donald Trump Bandaríkjaforseti eru nokkuð nánir og hafa átt í miklum samskiptum undanfarið.

Vakti það einnig talsverða athygli að í tilkynningu stjórnar Nvidia í gær var sérstaklega vísað í samtöl við hátt setta aðila innan bandarísku stjórnsýslunnar. Þau samtöl hafi fullvissað stjórnina um að ekki væri hætta á því að endurkoma Huang væri tilefni til þess að hafa áhyggjur af þjóðaröryggi.

Þá hefur Trump sjálfur stært sig af því að hafa rætt beint og óbeint við stjórnarmenn Nvidia um að fá Huang aftur til starfa. Var JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, látinn miðla málum með Huang og stjórn félagsins að því er New York Times greinir frá.

Ákvarðanir forsetans vega þungt

Christensen bendir á að tekjur Nvidia byggi í auknum mæli á ákvörðunum forseta Bandaríkjanna, meðal annars um það hvort selja megi örgjörva fyrirtækisins til Kína, hvort Bandaríkin taki toll af slíkri sölu og hversu vel viðskiptahömlum verði framfylgt.

Koma slíkar ábendingar ekki á óvart, enda hélt Huang við kínversku viðskiptakonuna Alice Huang sem bandarísk stjórnvöld telja vera njósnara á vegum kínverskra stjórnvalda. Í kjölfarið komst upp að Huang hefði átt í fleiri framhjáhöldum, að minnsta kosti tveimur alls.

Alice Huang er óskyld Jensen Huang. Hún stýrði áður tæknifyrirtækinu Megaspeed International, sem er með aðsetur í Singapúr. Fyrirtækið sætir rannsókn vegna gruns um að það hafi aðstoðað kínversk fyrirtæki við að útvega sér örgjörva frá Nvidia, hugsanlega í bága við bandarískar útflutningsreglur.

Jensen Huang ásamt Alice Huang á veitingastað í Taívan í maí 2025. AFP

Pólitískur kapítalismi

Oft hefur verið fjallað um greiðan aðgang Huang að Trump og segir Christensen að það sé þessi beina lína Huang til forsetans sem fjárfestar séu að borga fyrir.

Christensen vekur jafnframt athygli á því að þessi tegund afskipta stjórnvalda af einkareknu fyrirtæki sé það sem kallist pólitískur kapítalismi. Þannig þurfi fyrirtæki sem viti af stuðningi forsetans lítið að óttast og þurfi ekki að vera jafn varkár meðal annars í áhættutöku og önnur fyrirtæki.

Segir Christensen að Nvidia sé ekki eina fyrirtækið í þessari stöðu. Þannig bendir hann á að hlutabréf í Tesla hafi lækkað um 14% á einum degi í júní á síðasta ári þegar Elon Musk, forstjóri Tesla, hafi dottið tímabundið úr náðinni hjá Trump. Hann bendir jafnframt á að ekki sé langt síðan bandaríska ríkið hafi gerst stór hluthafi í bandaríska örgjörvaframleiðandanum Intel.

Meira í takt við Tyrkland og Rússland

Þetta skapar allt grundvöll fyrir því að hlutabréfaverð hreyfist frekar eftir pólitískum tengslum frekar en eftir því hvernig rekstur og stjórnun fyrirtækjanna er. Þannig segir Christensen að bandaríski hlutabréfamarkaðurinn hreyfi sig í dag meira í takt við það sem þekkist í Tyrklandi eða Rússlandi frekar en að vera sá bandaríski hlutabréfamarkaður sem fólk þekkti áður fyrr.

„Vandinn er sá að pólitísk trygging gildir aðeins á meðan stjórnmálamaðurinn sem veitir hana er við völd. Trump verður ekki forseti að eilífu. Og þegar tryggingin hverfur fellur gengi hlutabréfanna,“ segir Christensen.

Jensen Huang, forstjóri Nvidia og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. Huang er sagður eiga greiðan aðgang að Trump og er það talið ein af ástæðum þess að stjórn Nvidia ákvað að endurráða hann í gær. AFP

Ekki lengur frjáls markaður

Í öðrum pósti gengur hann jafnvel enn lengra og segir að í Bandaríkjunum gildi ekki lengur frjáls markaður.

Fyrirtæki sem hafi náð ákveðinni stærð eigi tilvist sína undir náð og miskunn Trump-stjórnarinnar og vísar Christensen til þess að stjórnvöld hafi lagt á ýmsa tolla og sektir og gefið út boð og bönn beint að ákveðnum fyrirtækjum. Svo greiði mörg fyrirtæki Trump eða fjölskyldu hans fjármuni til að komast hjá slíkum málum.

Segir hann reglurnar í Bandaríkjunum sífellt endurskrifaðar til að geta fengið aukið fé út úr fyrirtækjunum. Þannig snúist leikurinn í grunninn um að þjóna hagsmunum valdhafanna. Lausnin sé hins vegar ekki meiri ríkisafskipti heldur minni ríkisafskipti.

内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab