Lúxushótel Ólafs tekur á sig mynd
„Við erum búin að vinna kostnaðaráætlun en getum ekki gefið upp áætlaðan kostnað. Þetta verður mjög dýrt,“ segir Róbert Aron Róbertsson, framkvæmdastjóri fasteignaþróunarfélagsins Festis.
Festir stendur að baki félaginu Laxárbakki Resort ehf. sem áformar umfangsmikla uppbyggingu ferðaþjónustu á Laxárbakka í Eyja- og Miklaholtshreppi á sunnanverðu Snæfellsnesi. Stærstu bakhjarlar þessarar framkvæmdar eru hjónin Ólafur Ólafsson athafnamaður og Ingibjörg Kristjánsdóttir.
Morgunblaðið greindi frá því á síðasta ári að þessi uppbygging kynni að hafa umtalsverð umhverfisáhrif að mati Skipulagsstofnunar og væri því háð mati á umhverfisáhrifum. Nú hefur 137 blaðsíðna umhverfismatsskýrsla verið lögð fram til kynningar og næstu skref ráðast af viðtökum hennar.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗