Hvort sem konan í þínu lífi er eiturhress útivistartýpa eða sú sem vill hafa það náðugt heima hjá sér er nóg um að velja. Verðu samt tíma í að velja gjöfina, ekki vera á síðustu stundu því þá eru meiri líkur á að þú kaupir eitthvað sem hentar ekki.
Hlustaðu einnig vel á hana næstu vikur því hún er að öllum líkindum að gefa þér vísbendingar á degi hverjum.
Good Morning Good Night-tvennan
frá BIOEFFECT inniheldur tvær
einstaklega vinsælar húðvörur í fullri stærð. Vörurnar veita djúpan og
langvarandi raka og vinna markvisst
gegn sýnilegum öldrunareinkennum
húðarinnar frá morgni til kvölds.
Þetta kostar 32.190 kr.
Æðisleg rúllukragapeysa frá Filippu K, fæst í Mathildu og kostar 44.990 kr.
Kápa frá Stand Studio, fæst í Evu/GK Reykjavík og kostar 79.995 kr.
Fallegir vettlingar með blúndu frá Ganni. Fást í Andrá og kosta 21.990 kr.
Blómavasi úr áli frá Parcta, fæst í Mikado og kostar 59.990 kr.
Fallegur diskur frá Royal Copenhagen, fullkominn fyrir safnarann. Fæst í Kúnígúnd, kostar 23.495 kr.
Dökkbrún rúskinnstaska frá Ba&sh, fæst í Mathildu og kostar 54.990 kr.
„Horsebit“-gullhringur frá Gucci. Fæst
í Michelsen og kostar 665.000 kr.
Skaftpottur frá Le Creuset, fæst í Byggt og búið og kostar 39.995 kr.
Supersonic-hárblásari frá Dyson, fæst í Elko og kostar 94.995 kr.
Æðisleg prjónuð ullarhetta frá As We Grow sem kostar 22.900 kr.
Skelbuxur frá 66° Norður sem kosta 85.000 kr.
J16-ruggustóll frá Fredericia, hannaður af Hans J. Wegner. Fæst í Epal og kostar 445.000 kr.
Breitling Chronomat með hvítri perlumóður og ellefu demöntum. Fæst í Michelsen og kostar 830.000 kr.
Ullar- og sauðskinnsinniskór frá Shepherd, fást í Dimm og kosta 14.990 kr.
Húfa úr gerviloði frá Goldbergh, fæst í Hjá Hrafnhildi og kostar 36.980 kr.
Samsung Galaxy-samlokusími. Fæst meðal annars í Elko og kostar 229.995 kr.
KOT-ilmkrem frá Farmer's Market og Fischersundi sem kostar 9.600 kr. Ilminn einkennir sedrusviður, birki, leður, þurrt hey og marsípan.
Kuldaskór frá Moon Boot, fást í Mathildu og kosta 29.990 kr.
Ilmkerti frá Trudon fyrir lúxuskonuna. Fæst í Officina og kostar 14.990 kr.
Silkiklútur frá Hildi Yeoman, fæst í Yeoman og kostar 25.900 kr.