5.258 dauðsföll rakin til sumarhitans
Talið er að 5.258 dauðsföll í Englandi í sumar hafi tengst miklum hita. Það er mesti fjöldi sem mælst hefur frá því að breska heilbrigðisöryggisstofnunin (UKHSA) hóf að birta árlegar skýrslur um slík dauðsföll árið 2016. Stofnunin birti bráðabirgðamat sitt í dag.
Sumarið var það heitasta í Bretlandi frá upphafi mælinga. Fyrsta hitabylgjan skall á snemma sumars og fleiri fylgdu í kjölfarið. Miklir þurrkar geisuðu einnig í landinu eftir að úrkoma mældist minni en dæmi eru um í nærri 200 ár.
Vísindamenn segja að loftslagsbreytingar af mannavöldum ýti undir öfgar í veðri. Evrópa hlýnar hraðar en jörðin að meðaltali og hitabylgjur verða tíðari og ákafari.
Sjö hitatímabil frá maí til september
Bráðabirgðatölurnar kunna að breytast en stofnunin segir að metin áhrif hitans á dánartíðni hafi aldrei verið meiri. Matið nær til sjö tímabila mikils hita frá maí til september. Fyrra metið var frá sumrinu 2022, þegar talið var að 2.985 dauðsföll hefðu tengst hita.
Við matið ber stofnunin saman dánartíðni á tímabilum mikils hita og dánartíðni á nálægum tímabilum þegar ekki var mikill hiti. Að sögn stofnunarinnar gagnast sá samanburður sérstaklega við að meta áhrif hitabylgna.
Met einnig slegin í Þýskalandi og á Spáni
Fjöldi dauðsfalla sem tengd eru hita náði einnig hámarki í nokkrum öðrum Evrópulöndum í sumar. Í Þýskalandi voru þau 16.300 og á Spáni yfir 5.000.
Í skýrslu sem birtist í læknatímaritinu The Lancet í síðasta mánuði var áætlað að meira en þrjár milljónir manna hefðu látist af völdum hita á árunum 2016 til 2023. Þar var kallað eftir því að loftslagsbreytingum yrði lýst sem neyðarástandi í heilbrigðismálum á heimsvísu.
Þegar líkaminn reynir að halda líkamshitanum stöðugum í miklum hita eykst álagið á hann. Það eykur hættuna á hjartaáföllum og heilablóðföllum og skýrir oft hvers vegna dauðsföllum fjölgar í miklum hita.
Breska veðurstofan telur að veðurfyrirbærið El Niño gæti gert árið 2027 að heitasta ári á heimsvísu frá upphafi mælinga. Sérfræðingar hvetja Breta til að búa íbúðarhúsnæði og opinbera innviði betur undir heitari sumur.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗