Aftur ráðist á hæsta skýjakljúfinn
Hæsti skýjakljúfur Riyadh, höfuðborgar Sádi-Arabíu, varð fyrir eldflaug í dag, að sögn þriggja sjónarvotta sem AFP-fréttastofan ræddi við. Er þetta í annað sinn á innan við viku sem árás er gerð á bygginguna.
Í skýjakljúfnum eru höfuðstöðvar þjóðarsjóðs Sádi-Arabíu (PIF). Ekki liggur fyrir hvers konar eldflaug hæfði bygginguna.
Fjórði sjónarvotturinn sagði fréttastofunni að bifreið með hátalara hefði verið ekið um svæðið og vegfarendur hvattir til þess að leita skjóls.
Sádiarabísk yfirvöld hafa ekki tjáð sig um árásina og þá voru engar viðvaranir sendar í farsíma borgarbúa líkt og jafnan er gert þegar hætta steðjar að höfuðborginni.
Hútar lýstu yfir ábyrgð
Yfirvöld greindu frá því í síðustu viku að nokkrar hæðir í skýjakljúfi í fjármálahverfi borgarinnar hefðu orðið fyrir skemmdum í árás, auk tveggja bygginga þar nærri. Enginn særðist í árásinni.
Ekki var tekið fram hvaða skýjakljúfur hefði orðið fyrir árásinni en á myndum sem almannavarnir landsins birtu mátti að því er virtist sjá brotnar rúður og aðrar skemmdir á PIF-turninum.
Hútar í Jemen, sem njóta stuðnings Írans, sögðust bera ábyrgð á árásinni í síðustu viku en hafa ekki lýst árásinni í dag á hendur sér.
Sýningargluggi efnahagslegs metnaðar
Skýjakljúfurinn er 385 metra hár og gnæfir yfir fjármálahverfi borgarinnar, sem kennt er við Abdullah konung og er eins konar sýningargluggi fyrir efnahagslegan metnað konungsríkisins.
Í hverfinu, þar sem finna má fjölda skýjakljúfa, verslanir með lúxusvarning og græn svæði, eru einnig höfuðstöðvar kauphallar Sádi-Arabíu og starfsstöðvar alþjóðlegra stórfyrirtækja á borð við Goldman Sachs.
Hútar hafa á undanförnum vikum hert árásir sínar á Sádi-Arabíu og meðal annars gert árásir á flugvelli, orkuinnviði og hernaðarmannvirki.
Fjórtán létust og hundruð særðust í árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh í október. Lá flug um völlinn niðri í tvær vikur í kjölfarið.
Hernaðarbandalag undir forystu Sádi-Arabíu hefur svarað árásunum með árásum á skotmörk Húta í Jemen.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/51/1695169.jpg)