Drengur ákærður fyrir hryðjuverk í Lundúnum
Breska ákæruvaldið telur að þrettán ára drengur hafi reynt að myrða tvo skólapilta í hryðjuverkaskyni þegar hann réðst á þá í skóla í Lundúnum í febrúar.
Drengurinn er sagður hafa hrópað ítrekað „Allahu Akbar“ á meðan á árásinni stóð, en hann stakk piltana tvo í hálsinn.
Þetta kom fram við upphaf réttarhaldanna yfir drengnum í Old Bailey-dómshúsinu í Lundúnum í dag en hann er ákærður fyrir tvær tilraunir til manndráps.
Árásin var gerð í Kingsbury High School í norðvesturhluta Lundúna 10. febrúar. Fjöldi skólabarna varð vitni að henni og greip um sig mikil skelfing meðal þeirra.
Telur árásina hafa verið hryðjuverk
Alison Morgan saksóknari sagði við upphaf réttarhaldanna að það væri nánast kraftaverk að báðir drengirnir hefðu lifað árásina af.
Hún sagði það afstöðu ákæruvaldsins að ákærði hefði reynt að myrða drengina tvo og að um hryðjuverk hefði verið að ræða.
Ákærði þekkti annan drengjanna en hinn var honum með öllu ókunnugur, að því er fram kemur í umfjöllun bresku sjónvarpsstöðvarinnar ITV.
Hafði verið vísað úr skólanum
Drengurinn var áður nemandi við skólann en hafði verið vísað úr honum vegna slæmrar hegðunar. Saksóknari sagði kviðdómendum að þeir myndu fá að sjá myndbandsupptöku sem drengurinn tók sjálfur af árásinni.
Drengurinn, sem nú er orðinn fjórtán ára, neitar sök í báðum ákæruliðum. Óheimilt er samkvæmt breskum lögum að greina frá nafni hans.
Réttarhöldin standa enn yfir.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗