Heimspressan fjallar um meðgöngu Katrínar Tönju
Brooks Laich og Katrín Tanja Davíðsdóttir Laich eiga von á öðru barni. Samsett mynd/Skjáskot/Instagram
Crossfit-stjarnan Katrín Tanja Davíðsdóttir Laich á von á sínu öðru barni með eiginmanni sínum, Brooks Laich. Laich er fyrrverandi íshokkíleikmaður og töluverð stjarna í Bandaríkjunum. Fjallað hefur verið um meðgönguna í mörgum miðlum vestanhafs.
Í fréttum af meðgöngunni er meðal annars fjallað um að hjónin eigi von á sínu öðru barni og stutt sé síðan að þau hafi gift sig en þau gengu í hjónaband í sumar. Einnig er fjallað um viðbrögð fyrrverandi eiginkonu Laich en hann var kvæntur Juliönnu Hough, sjónvarpsstjörnu og leikkonu.
Margar fréttir
Vefurinn People fjallaði ítarlega um brúðkaup hjónanna í ágúst og birti myndir úr brúðkaupinu. Þau greindu líka frá því að hjónin ættu von á öðru barni. Í frétt miðilsins kom fram að Katrín Tanja hefði verið í bikíní og Laich og dóttir þeirra Emberly hefðu kysst óléttukúluna. Jafnframt var fjallað um viðbrögð fyrrverandi eiginkonu Hough. „Jej, systkini á leiðinni,“ skrifaði fyrrverandi meðal annars. Laich svaraði fyrrverandi eiginkonu sinni og sagði að dóttir þeirra væri mjög spennt en hún er eins árs.
Á vef E! var fréttin svipuð og sérstaklega fjallað um hvernig Hough, fyrrverandi eiginkona Laich, óskaði hjónunum til hamingju. Var einnig rifjað upp að Laich og Hough hafi gengið í hjónaband á sama stað í Idaho og Katrín Tanja og Brooks Laich.
Á slúðurmiðlinum Us Weekly er einnig fjallað um óléttutilkynningu hjónanna sem þau tóku upp í brúðkaupsferðinni á Bora Bora. Þar var tekið fram að aðdáendur Laich væru ánægðir með að sjá vinsamleg samskipti Laich og fyrrverandi eiginkonu hans.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗