Eldur á landareign leikarahjóna
Eldur kom upp í hlöðu á landareign leikarahjónanna Wills Smith og Jödu Pinkett Smith í Calabasas í Kaliforníu aðfaranótt mánudags. Engan sakaði en lögregla telur að eldurinn hafi kviknað af slysni.
Að sögn talsmanns slökkviliðsins í Los Angeles var hlaðan um 75 fermetrar að stærð. Slökkviliðsmenn náðu tökum á eldinum skömmu fyrir klukkan eitt um nóttina, að því er fram kemur í umfjöllun People.
Á upptöku sem fjölmiðlar ytra hafa undir höndum heyrist slökkviliðsmaður greina frá því að eldurinn hafi ekki borist í gróður í grenndinni.
Sáust saman í Malibu
Á laugardaginn sáust Will og Jada ásamt börnum sínum tveimur á Little Beach House í Malibu. Sonur þeirra, Jaden, er 28 ára og dóttirin Willow 26 ára. Mæður hjónanna, Caroline Bright og Adrienne Banfield-Norris, voru einnig með í för.
Hjónin hafa sjaldan sést saman opinberlega undanfarið en í júní sóttu þau tískuvikuna í París til að styðja við bakið á Jaden. Heimildarmaður People sagði þá að samverustundir með börnunum skiptu þau bæði miklu máli.
Will og Jada gengu í hjónaband árið 1997. Árið 2023 greindi Jada frá því að þau hefðu verið slitið samvistir í sjö ár. Í júlí síðastliðnum sagði heimildarmaður People að Jada hefði flutt aftur til Wills árið 2024.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗