Brotist inn á sveitasetur Vilhjálms og Katrínar

Reynt var að brjótast inn á sveitasetur Vilhjálms Bretaprins og Katrínar prinsessu. AFP/Chris Jackson

Brotist var inn á sveitasetur Vilhjálms Bretaprins og Katrínar prinsessu af Wales á mánudagskvöldið. Lögreglan rannsakar nú málið en verst allra fregna.

Innbrotið átti sér stað á sveitasetri fjölskyldunnar Anmer Hall í Norfolk á Englandi að því fram kemur á vef Daily Mail. Fjölskyldan notar sveitasetrið aðallega í fríum og um helgar og var á heimili sínu í Windsor þegar glæpurinn átti sér stað. Sveitasetrið er með tíu svefnherbergjum og fengu hjónin það að gjöf frá Elísabtu II. heitinni Bretadrottningu.

Kensington-höll tjáir sig ekki um öryggismál en staðfesti að engir meðlimir konungsfjölskyldunnar hefðu verið á staðnum þegar atvikið átti sér stað. Heimamenn lýstu miklum viðbúnaði lögreglu við sveitasetrið í gærkvöldi. Vilhjálmur mætti til vinnu í morgun eins og ekkert hefði í skorist. Hann fundaði með forsætisráðherra Bretlands Andy Burnham. 

Ekki í fyrsta sinn

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þjófar reyna að brjótast inn hjá hjónunum. Árið 2024 brutust tveir grímuklæddir innbrotsþjófar inn á Shaw Farm á landareign Windsor-kastala. Þeim tókst að klifra yfir tæplega tveggja metra háa girðingu, stela fjórhjóli úr hlöðu og nota stolinn pallbíl til að brjótast í gegnum öryggishlið til að komast undan. Hliðið, sem var innan öryggissvæðis kastalans og fjölskyldan notar reglulega þar sem það er næst þeim, skemmdist svo illa að skipta þurfti því út.

Vilhjálmur Bretaprins og Katrín prinsessa dvelja í fríum og um helgar í Norfolk. AFP/ Punit PARANJPE

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab