Diana Krall hefur Evrópuferðina í Hörpu
Diana Krall hélt tónleika í Laugardalshöll árið 2003. Hún snýr aftur á íslenskt tónleikasvið 13. september á næsta ári. mbl.is/Halldór Kolbeins
Kanadíska djasssöngkonan og píanóleikarinn Diana Krall heldur tónleika í Eldborg í Hörpu 13. september á næsta ári. Tónleikarnir marka upphaf tónleikaferðar hennar um Evrópu og Bretland.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá tónleikahaldaranum Tónleiki. Miðasala hefst mánudaginn 30. nóvember á tix.is.
Á tónleikaferðinni mun Krall meðal annars koma fram í Royal Albert Hall í London og L’Olympia í París.
Unnið með McCartney og Bennett
Krall hefur hlotið Grammy-verðlaun og unnið með tónlistarfólki á borð við Paul McCartney, Barbra Streisand og Tony Bennett.
Árið 2018 gaf hún út plötuna Love Is Here to Stay með Bennett, þar sem þau fluttu sígild lög eftir George Gershwin.
Á efnisskrá hennar eru meðal annars sígild djasslög og bandarísk dægurtónlist en spuni skipar stóran sess á tónleikum hennar. Með henni í núverandi tríói eru trommuleikarinn Matt Chamberlain og bassaleikarinn Sebastian Steinberg, að því er segir í tilkynningunni.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗