Segir Þorgerði ekki hafa skýrt lagaheimildina

Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Karítas

Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafi ekki skýrt á hvaða lagaheimild utanríkisráðuneytið byggði þegar það samdi við Nebraska ehf. um ráðgjöf Heiðu Kristínar Helgadóttur.

Að mati Jens voru verkefnin pólitísk og áttu undir aðstoðarmann ráðherra.

Jens tók málið upp undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag. Ólafur Adolfsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði út í sama samning í óundirbúnum fyrirspurnatíma í gær.

Samningurinn laut að ráðgjöf vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Þorgerður Katrín sagði á þinginu í gær að farið hefði verið eftir öllum lögum og reglum. 

Segir störfin hafa verið pólitísk

Jens vísaði til 22. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, sem heimilar ráðherrum að ráða sér aðstoðarmenn. Að hans mati er óheimilt að semja við verktaka um pólitísk störf af því tagi sem Heiða Kristín sinnti.

Hann sagði að hún hefði sjálf lýst störfunum sem pólitískum í fjölmiðlum og vitnaði í ummæli hennar í sjónvarpi: „Starfslýsing mín var engin.“ Hann sagði jafnframt að reglur um hagsmunaskráningu aðstoðarmanna ráðherra hefðu ekki tekið til hennar sem verktaka.

Skriflegi samningurinn var undirritaður 4. mars og gerði ráð fyrir allt að 25 klukkustunda vinnu á viku. Að sögn Jens var tímagjaldið 17.500 krónur án virðisaukaskatts og fyrsti reikningurinn hafði verið sendur áður en samningurinn var undirritaður.

Jens velti því einnig upp hvort samið hefði verið við félagið til að koma í veg fyrir að greiðslurnar gengju upp í opinber gjöld sem Heiða Kristín og eiginmaður hennar kynnu að skulda. Hann setti þá tilgátu fram með þeim fyrirvara að fréttir af skuldum þeirra væru réttar.

Í lok ræðunnar sagði hann að umboðsmaður Alþingis hefði áður hafið frumkvæðisathugun að minna tilefni. 

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. mbl.is/Karítas

Ráðherra sagði verkefnin skýrt skilgreind

Þorgerður Katrín sagði í gær að verkefni Heiðu Kristínar hefðu verið skýrt skilgreind í skriflega samningnum og að samningurinn hefði verið undir viðmiðunarmörkum útboðsskyldu. Hún sagði jafnframt að ráðgjöfin hefði verið ódýrari en að ráða annan aðstoðarmann.

Að sögn ráðherra var samið munnlega um viðbótarþóknun eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna þar sem enn átti eftir að ljúka verkefnum í tengslum við hana. Utanríkisráðuneytið greiddi Nebraska alls 14 milljónir króna án virðisaukaskatts, þar af 3,5 milljónir í viðbótarþóknun, samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins til Morgunblaðsins.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab