Söngkona hýdd 74 sinnum fyrir að koma fram án slæðu

Parastoo Ahmadi í myndbandinu.

Parastoo Ahmadi í myndbandinu. Skjáskot/YouTube

Yfirvöld í Íran hýddu í gær söngkonuna Parastoo Ahmadi ásamt fjórum öðrum.

Hlutu þau hvert um sig 74 svipuhögg eftir að hafa verið sakfelld fyrir „brot gegn almennum siðferðisreglum“ vegna tónlistarmyndbands þar sem Ahmadi kemur fram án hinnar lögboðnu hijab-slæðu, í ermalausum kjól og í fylgd karlkyns tónlistarmanna. 

Auk hýðinganna sæta fimmmenningarnir farbanni í tvö ár og fá ekki að taka þátt í lista- og tónlistarstarfi í jafnlangan tíma, að því er Reuters greinir frá.

Hér má sjá myndbandið sem þau voru hýdd fyrir.

Óvinsælar reglur um klæðaburð

Samkvæmt írönskum lögum, sem byggja á túlkun íranskra yfirvalda á sjaríalögum, verða konur og stúlkur sem náð hafa kynþroskaaldri að hylja hár sitt með slæðu og klæðast síðum, víðum fötum til að fela vöxt sinn. 

Klæðaburðarreglurnar hafa lengi verið óvinsælar og urðu þungamiðja fjölmennra mótmæla árið 2022 eftir að Mahsa Amini, írönsk kona af kúrdískum uppruna, lést í varðhaldi eftir að hafa verið handtekin fyrir meint brot á reglunum.

Konur víðs vegar um landið brenndu höfuðslæður sínar eða veifuðu þeim á lofti í mótmælaskyni. Hundruð manna létu lífið þegar öryggissveitir brutu mótmælin á bak aftur. 

Síðan þá hafa margar konur og stúlkur hætt að hylja hár sitt á almannafæri.

Samkvæmt lögum verða konur og stúlkur sem náð hafa kynþroskaaldri að hylja hár sitt með slæðu og klæðast síðum, víðum fötum til að fela vöxt sinn. AFP

Hýðingar og dauðarefsingar tíðar

Vestræn ríki og mannréttindasamtök hafa fordæmt beitingu hýðinga en írönsk yfirvöld hafa vísað gagnrýninni á bug og hvatt Vesturlönd til að taka frekar á eigin mannréttindabrotum.

Íranska dómskerfið hefur beitt hýðingum og dauðarefsingum í auknum mæli í málum sem varða pólitískar sakargiftir. Nýverið dæmdu írönsk yfirvöld 23 ára gamla námskonu til dauða fyrir að hafa móðgað Múhameð spámann í færslum á samfélagsmiðlum. 

Þá eiga að minnsta kosti átta konur yfir höfði sér aftöku vegna pólitískra sakargifta og í það minnsta 39 karlmenn hafa verið hengdir vegna meintrar aðildar sinnar að mótmælum gegn klerkastjórninni í Íran í janúar síðastliðnum.

Að minnsta kosti 121 mótmælandi til viðbótar hefur verið dæmdur til dauða, að sögn norsku mannréttindasamtakanna Iran Human Rights.

Vörubíla þurfti til að flytja líkin 

Áður hefur verið greint frá því að allt að 30 þúsund manns hafi látið lífið á tveggja daga tímabili í mótmælunum í janúar.

Samkvæmt þeim frásögnum var mannfallið svo mikið að líkpokabirgðir landsins gengu til þurrðar og grípa þurfti til stórra vöruflutningabíla með tengivögnum til að flytja lík hinna látnu.

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab