Tugir trjáa liggja í valnum: „Engin sýnileg ástæða“

Skemmdarverkin hafa verið unnin ítrekað frá því í byrjun október.

Skemmdarverkin hafa verið unnin ítrekað frá því í byrjun október. Ljósmynd/Skógræktarfélag Selfoss

Nokkrir tugir trjáa hafa verið höggnir niður með öxi í Hellisskógi á Selfossi frá því í byrjun október. Skógræktarfélag Selfoss hefur tilkynnt skemmdarverkin til lögreglu og óskar eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á þeim sem er að verki.

Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu félagsins. Þar segir að einhver hafi ítrekað farið um skóginn og höggvið niður tré.

„Nokkrir tugir trjáa af ýmsum tegundum liggja nú í valnum en engin sýnileg ástæða, hagur eða skilaboð virðast fólgin í þessum gjörningi annar en eyðileggingarhvöt,“ segir í færslunni.

Svipuð ummerki við Gesthús

Sams konar ummerki sáust einnig í skóginum við Gesthús fyrr í haust og telur félagið líklegt að sami einstaklingur hafi þar verið að verki.

Þeir sem búa yfir upplýsingum um skemmdarverkin eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Selfossi, garðyrkjudeild Árborgar eða Skógræktarfélag Selfoss.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab