Segir Jens hafa átt að biðjast afsökunar

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar.

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar. mbl.is/Eyþór

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, segir Jens Garðar Helgason, þingmann Sjálfstæðisflokksins, hafa misst af tækifæri til að biðjast afsökunar á ummælum sínum um skattamál Heiðu Kristínar Helgadóttur og eiginmanns hennar.

Jens sagði að hann hefði sett ummælin fram með þeim fyrirvara að fréttir af skuldum þeirra reyndust réttar.

Orðaskiptin urðu í umræðum um fundarstjórn forseta á Alþingi í dag.

Jens hafði fyrr á þingfundinum gagnrýnt samning utanríkisráðuneytisins við Nebraska ehf. um ráðgjöf Heiðu Kristínar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið.

Hann velti því upp hvort samið hefði verið við félagið til að koma í veg fyrir að greiðslurnar rynnu til greiðslu á útistandandi opinberum gjöldum hjónanna, ef fréttir af skuldum þeirra væru réttar. 

Pawel Batroszek, þingmaður Viðreisnar.

Pawel Batroszek, þingmaður Viðreisnar. mbl.is/Eyþór

Vill að forseti ræði við þingflokksformenn

Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, sagði þinginu og þingmönnum ósæmandi að setja fram getgátur um skattamál fólks sem ætti þess ekki kost að svara fyrir sig í þingsal.

Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingmaður Samfylkingarinnar, bað forseta Alþingis að ræða við þingflokksformenn um hvernig þingmenn töluðu um fólk sem gæti ekki borið hönd fyrir höfuð sér í þingsal.

Hann sagði ræðuna hafa tekið óheppilega stefnu þegar farið var að dylgja um skattaskuldir og jafnvel skattaundanskot.

„Á hvaða vegferð er Sjálfstæðisflokkurinn?“ spurði Guðmundur Ari. Hann sakaði flokkinn um að tortryggja fólk sem stofnaði fyrirtæki, tæki áhættu og gæti lent í rekstrarvanda.

Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingmaður Samfylkingarinnar.

Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingmaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Karítas

Jens segir spurningu um munnlegt samkomulag ósvarað

Jens sagði í svari sínu að hann hefði vísað til þess sem fram hefði komið í fjölmiðlum og tekið sérstaklega fram að ummælin væru háð því að fréttirnar reyndust réttar.

Hann sagði enn ósvarað hvort ráðherra hefði heimild til að semja munnlega um framlengingu samningsins.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagði á Alþingi í gær að munnlega hefði verið samið um viðbótarþóknun eftir atkvæðagreiðsluna og að öllum lögum og reglum hefði verið fylgt. 

Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.

Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eggert Johannesson

Sigmar tók því næst til máls og sagði þingmenn þurfa að vega orð sín þegar þeir töluðu um fólk sem gæti ekki svarað fyrir sig úr ræðustól Alþingis.

Hann sagði það sérkennilegt að Jens gagnrýndi aðra fyrir dylgjur en viðhefði þær sjálfur að hans mati.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab