Íslandsbanki kaupir bréf og á nú 7% í sjálfum sér
Íslandsbanki hóf í dag nýja umferð endurkaupa á eigin hlutabréfum fyrir allt að tvo milljarða króna. Bankinn hyggst að hámarki kaupa 20 milljónir hluta, sem jafngilda um 1,14% af útgefnu hlutafé bankans.
Þetta kemur fram í tilkynningu Íslandsbanka til Kauphallar í gærkvöldi.
Endurkaupin eru liður í tíu milljarða króna endurkaupaáætlun bankans sem tilkynnt var um 21. september síðastliðinn. Fyrsta umferð endurkaupanna hófst 2. október og lauk í gær.
Íslandsbanki á nú rúmlega 127 milljónir eigin hluta, sem jafngilda um 7,27% af útgefnu hlutafé bankans.
Stendur fram í janúarlok
Tilgangur endurkaupanna er að lækka hlutafé bankans eða standa við skuldbindingar hans vegna kaupréttaráætlunar starfsmanna og kaupaukagreiðslna í samræmi við starfskjarastefnu bankans.
Endurkaupin munu standa til 31. janúar á næsta ári nema hámarksfjölda hluta eða hámarksfjárhæð endurkaupanna verði náð fyrir þann tíma..
Kvika banki hefur umsjón með endurkaupunum og tekur sjálfstæðar ákvarðanir um tímasetningu kaupanna.
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur veitt samþykki sitt fyrir endurkaupunum
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗