Áfellisdómur yfir Landspítalanum: „Það þarf að rétta hlut Tómasar"
Landspítalinn braut gegn lögum þegar Tómasi Guðbjartssyni hjartaskurðlækni var veitt áminning í starfi, samkvæmt niðurstöðu umboðsmanns Alþingis. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Læknafélag Íslands gerir ráð fyrir að Landspítalinn dragi áminningu Tómasar Guðbjartssonar hjartaskurðlæknis til baka í kjölfar álits umboðsmanns Alþingis. Steinunn Þórðardóttir, formaður félagsins, segir niðurstöðuna mjög alvarlega.
„Þetta er sannarlega áfellisdómur yfir stjórnsýslu Landspítalans,“ segir Steinunn í samtali við mbl.is.
Hún staðfestir jafnframt að Landspítalinn hafi boðað til fundar með Tómasi og Læknafélaginu.
Í 22 blaðsíðna áliti umboðsmanns Alþingis, sem mbl.is hefur undir höndum, er komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðun Landspítalans um að veita Tómasi áminningu vegna myndbirtingar á Facebook og myndatöku á hjartaþræðingarstofu hafi ekki verið í samræmi við lög.
Umboðsmaður telur jafnframt að spítalinn hafi gengið of langt með því að afþakka vinnuframlag Tómasar svo lengi sem raun bar vitni.
Læknafélagið leitaði til umboðsmanns fyrir hönd Tómasar 17. mars 2025. Álitið er dagsett 18. nóvember en Vísir greindi fyrst frá efni þess í morgun.
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, segir mikilvægt að vinnubrögð Landspítalans verði endurskoðuð. Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þakklát fyrir afdráttarlausa niðurstöðu
Steinunn segir niðurstöðuna staðfesta afstöðu félagsins til málsins frá upphafi.
„Hún kom okkur ekki á óvart en við erum mjög þakklát fyrir það hvað hún er afdráttarlaus.“
Umboðsmaður beinir þeim tilmælum til Landspítalans að tekið verði til skoðunar hvernig rétta megi hlut Tómasar, óski hann eftir því.
Steinunn hefur áhyggjur af því að fleiri starfsmenn geti lent í sambærilegri stöðu.
„Það er mjög óþægilegt að vinnubrögð séu með þessum hætti og fólk geti átt von á því að lenda í einhverju svipuðu.“
Spítalinn hafði sjálfur birt sambærilegar myndir
Landspítalinn veitti Tómasi áminningu 24. janúar 2025 vegna tveggja atvika í nóvember 2024. Annars vegar hafði hann birt mynd úr skurðaðgerð á Facebook-síðu sinni og hins vegar tekið myndir af sjúklingi á hjartaþræðingarstofu.
Í álitinu kemur fram að gestur á vegum spítalans, en ekki Tómas sjálfur, hafi tekið myndina sem hann birti á Facebook. Engar persónugreinanlegar upplýsingar um sjúklinga eða aðstandendur hafi verið á myndinni. Spítalinn hafi auk þess sjálfur átt frumkvæði að birtingu sambærilegra mynda.
Að mati umboðsmanns braut spítalinn gegn meðalhófsreglu stjórnsýslulaga með því að áminna Tómas fyrir birtinguna.
Landspítalinn vísaði meðal annars til þess að Tómas hefði notað eigin síma við myndatökuna á hjartaþræðingarstofunni og að samstarfsmenn hefðu gert athugasemdir við framgöngu hans.
Tómas hélt því hins vegar fram að myndatakan hefði verið nauðsynleg vegna meðferðar sjúklingsins. Umboðsmaður telur að spítalinn hafi hvorki rannsakað þann þátt málsins nægilega né gætt að andmælarétti Tómasar. Þá hafi spítalinn einnig brotið gegn skráningarskyldu sinni samkvæmt upplýsingalögum.
Kunna að ganga of nærri tjáningarfrelsi
Steinunn vekur jafnframt athygli á athugasemdum umboðsmanns við verklagsreglur Landspítalans um myndbirtingar á samfélagsmiðlum. Reglurnar kunni að ganga of nærri tjáningarfrelsi starfsfólks.
Umboðsmaður beinir þeim tilmælum til spítalans að skoðað verði hvort tilefni sé til að breyta ákvæði reglnanna um tjáningu á samfélagsmiðlum.
Óljóst hvenær honum var heimilt að snúa aftur
Landspítalinn afþakkaði vinnuframlag Tómasar 6. desember 2024 án þess að skerða laun hans. Í skýringum spítalans til umboðsmanns var meðal annars vísað til samskiptaörðugleika milli Tómasar og samstarfsmanna hans.
Umboðsmaður telur að spítalinn hafi brotið gegn óskráðri meginreglu um meðalhóf með því að afþakka vinnuframlag hans svo lengi sem raun bar vitni. Ekkert í gögnum málsins bendi til þess að leitað hafi verið annarra leiða til að ráða bót á samskiptaörðugleikunum en að senda Tómas í leyfi meðan á rannsókn málsins stóð.
Af gögnum málsins varð heldur ekki ráðið hvort eða hvenær Tómasi var formlega tilkynnt að honum væri heimilt að snúa aftur til starfa.
Spítalinn benti jafnframt á að fjarvera hans skýrðist einnig af rannsóknarleyfi frá 1. febrúar 2025 og veikindaleyfi frá 28. apríl sama ár.
Tómas sneri aftur til starfa á Landspítalanum í september síðastliðnum.
Óréttlætanlegar tafir á málsmeðferð
Tvö önnur ætluð brot Tómasar í starfi, sem vörðuðu framgöngu hans við tvær skurðaðgerðir, voru einnig til skoðunar hjá spítalanum.
Það var ekki fyrr en 29. ágúst 2025 sem fallið var frá áformum um áminningu vegna þeirra, tæpum átta og hálfum mánuði eftir að andmæli Tómasar lágu fyrir.
Að mati umboðsmanns voru tafirnar ekki réttlætanlegar og braut spítalinn þar með gegn málshraðareglu stjórnsýslulaga.
Átti að taka afstöðu til hæfis yfirmanns
Í álitinu er einnig fjallað um aðkomu framkvæmdastjóra skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu að málinu. Tómas hafði lagt fram formlega eineltiskvörtun sem beindist meðal annars að framkvæmdastjóranum, sem síðar skrifaði undir áminningarbréfið.
Umboðsmaður telur að tilefni hafi verið til að taka formlega afstöðu til hæfis framkvæmdastjórans til meðferðar málsins. Í álitinu er þó ekki tekin efnisleg afstaða til þess hvort hann hafi verið vanhæfur.
Steinunn leggur áherslu á að niðurstaðan hafi þýðingu fyrir fleiri en Tómas.
„Það þarf að rétta hlut Tómasar en það þarf líka að fullvissa starfsfólk almennt um að þessi vinnubrögð verði endurskoðuð,“ segir hún.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
