Freyr hefur átt í viðræðum við Swansea - Vilja klára málið í vikunni
Freyr Alexandersson, þjálfari norska úrvalsdeildarliðsins Rosenborg, hefur átt í viðræðum við enska B-deildarfélagið Swansea City um að taka við liðinu.
Þetta kemur fram í frétt Telegraph en Freyr er sagður vera efstur á óskalista velska félagsins um þessar mundir.
Þjálfarastarfið hjá Swansea er laust eftir að Vitor Matos yfirgaf félagið í síðustu viku til að taka við franska úrvalsdeildarliðinu Strasbourg.
Samkvæmt WalesOnline vonast forráðamenn Swansea til þess að ganga frá ráðningu nýs þjálfara fyrir lok vikunnar.
Freyr er orðinn líklegastur til að hreppa starfið hjá veðbönkum en hann var einnig orðaður við Cardiff City árið 2024.
Tommy Elphick, þjálfari hjá Liverpool, hefur einnig verið orðaður við starfið en Swansea hefur ekki sett sig í samband við hann samkvæmt WalesOnline.
Ashley Williams stýrir Swansea til bráðabirgða en liðið gerði 2-2 jafntefli við West Brom á laugardaginn.
Freyr, sem er 44 ára gamall, hefur náð góðum árangri með Rosenborg á tímabilinu en liðið berst um Evrópusæti.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗