United missti af stuðningsmanni félagsins sem skoraði gegn þeim
Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 24. nóvember 2026 14:30
Rio Ngumoha fagnar marki sínu í gær. Getty Images
Nicky Butt, fyrrverandi leikmaður Manchester United, er afar ósáttur við að félagið hafi misst af því að fá Rio Ngumoha, 18 ára kantmann Liverpool, til sín.
Ngumoha átti stórleik þegar Liverpool vann United 4-0 á Anfield á sunnudaginn. Hann skoraði eitt mark og lagði annað upp.
Butt greindi frá því í hlaðvarpinu The Good, The Bad and The Football að Ngumoha og fjölskylda hans væru miklir stuðningsmenn United.
„Hann er gríðarlegur stuðningsmaður United og fjölskyldan hans líka. Hann kom og skoðaði aðstöðuna hjá félaginu þegar hann var 13 eða 14 ára en valdi síðan Liverpool.“
Butt segir óskiljanlegt að United hafi ekki tekist að sannfæra hann. „Hann hefði aldrei átt að fá að yfirgefa bygginguna án þess að skrifa undir samning.“
Hann telur að fyrrverandi stórstjörnur félagsins hefðu átt að taka á móti Ngumoha. „Ég hefði viljað sjá Wayne Rooney, Paul Scholes eða Ryan Giggs sýna honum aðstöðuna.“
Butt minnti jafnframt á að United hefði einnig misst af Jude Bellingham eftir heimsókn hans til félagsins árið 2020.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗