Systkini sluppu með skrekkinn - Þurftu næstum að deila 170 m.kr. arfi með sextán fjarskyldum ættingjum
Þegar Dorothy Eirwen George lést 83 ára að aldri í desember árið 2023 lét hún eftir sig söluverðar eignir, sem eru metnar á um milljón breskra punda, eða tæplega 170 milljónir íslenskra króna. Eignirnar voru meðal annars fasteignir á Bretlandi og orlofshús á Kýpur.
Árin áður en hún lést hafði Dorothy komið því skýrt á framfæri að systkinabörn hennar, Helen Thyer og bróðir hennar Peter Crawford, ættu að erfa hana. Hún gerði erfðaskrá árið 2017 þar sem skýrt kom fram að eignir hennar í Bretlandi ættu að renna til systkinanna.
Dorothy tókst þó, óvart, að flækja málin þegar hún gerði aðra erfðaskrá nokkrum mánuðum síðar. Þar vildi hún arfleifa Helen Thyer að orlofsíbúðinni á Kýpur. Þessi seinni erfðaskrá átti eftir að hafa afleiðingar því eftir að Dorothy var látin var talið að með seinni erfðaskránni hefði sú fyrri verið afturkölluð. Það hefði haft í för með sér að aðeins eignin á Kýpur átti sér erfingja. Restin af eignunum ætti því að ganga inn í dánarbú og skiptast á milli 18 ættingja hennar.
„Ég hló þegar mér var sagt þetta því þetta hljómaði svo galið,“ sagði Helen Thyer í samtali við fjölmiðla eftir að málið var til lykta leitt hjá Hæstarétti London, en þar féllst dómari á að fyrri erfðaskráin væri gild.
Lögmenn systkinanna bentu á að Dorothy hafi ávallt ætlað sér að arfleifa systkinin að öllum sínum eignum. Seinni erfðaskráin hafi aðeins verið gerð til að tryggja réttláta skiptingu þar sem Peter Crawford hafði fengið aðeins meira en systir hans samkvæmt skiptingu eigna í fyrri erfðaskránni. Bentu lögmenn á að vilji hinnar látnu hafi ekki staðið til þess að fella fyrri skrána úr gildi heldur hafi hún aðeins ætlað sér að bæta við hana.
Hinir ættingjarnir sem hefðu tekið arf eftir Dorothy, hefði fyrri erfðaskráin verið metin ógild, voru í engum samskiptum við hina látnu eða systkinabörn hennar. Í raun þurftu Helen og Peter að ráða sérfræðinga í erfðagreiningu til að hafa uppi á ættingjunum svo þeir gætu gripið til varna í málinu. Sem betur fer ákvað enginn af hinum fjarskyldu ættingjum að láta málið til sín taka.
Vinkona hinnar látnu bar vitni í málinu og lýsti því að Dorothy hafi ætlað systkinunum að taka allan arf eftir sig. Ekkert annað hafi komið til greina. Lögmenn bentu á að um mistök hafi verið að ræða í seinni erfðaskránni sem innihélt staðlað ákvæði um að við undirritun féllu allar eldri erfðaskrár úr gildi.
Helen vonar að málið verði öðrum víti til varnaðar: „Þú þarft að hafa vaðið fyrir neðan þig þegar þú skrifar erfðaskrá. Þetta mál hefur tekið tæp þrjú ár og kostað mikla peninga og hausverk.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗