Alvarleg mistök á sænskri tannlæknastofu - 1.500 sjúklingum boðið í HIV-próf

Um 1.500 sjúklingum sem sótt hafa tannlæknastofu í sænsku borginni Växjö í haust hefur verið boðið að gangast undir sýnatöku til að kanna hvort þeir hafi smitast af HIV eða lifrarbólgu B eða C.

Í ljós hefur komið að tannlæknatæki á stofunni voru í nokkur skipti ekki sótthreinsuð með fullnægjandi hætti.

Sænska blaðið Aftonbladet greinir frá þessu og vísar í fréttatilkynningu frá heilbrigðisyfirvöldum í Kronoberg-héraði.

Í frétt miðilsins kemur fram að ný þvotta- og sótthreinsivél hafi verið tekin í notkun á tannlæknastofunni í haust. Vélin á að þvo, hita, sótthreinsa og þurrka tannlæknatæki.

Í ljós hefur hins vegar komið að í fjögur skipti sleppti vélin fyrstu þremur þrepum hreinsunarferlisins og þurrkaði tækin án þess að þau hefðu verið þrifin eða sótthreinsuð.

Um 1.500 sjúklingar sóttu stofuna á umræddu tímabili og ekki er hægt að rekja hvaða sjúklingar fengu meðferð með óhreinu tækjunum.

Öllum sjúklingunum verður því boðið að gangast undir sýnatöku vegna HIV og lifrarbólgu B og C.

„Við metum smithættuna mjög litla en þar sem við getum ekki útilokað hana með öllu bjóðum við upp á sýnatöku,“ segir Christian Blomkvist, sóttvarnalæknir í Kronoberg-héraði.

Tannlæknastofunni var lokað í sólarhring eftir að upp komst um málið svo hægt væri að þrífa og sótthreinsa tækin. Þá hefur stillingarmöguleikum sótthreinsivélanna verið breytt og eftirlit farið fram til að draga úr hættu á að sambærilegt atvik endurtaki sig. 

Ekki hefur verið greint frá neinum staðfestum smitum í tengslum við málið.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab