Gústaf fluttur inn til Brynjars
Fókus
Þriðjudaginn 24. nóvember 2026 14:31
Gústaf og Brynjar Níelssynir. Samsett mynd.
Gústaf Níelsson er fluttur inn til bróður síns Brynjars Níelssonar borgarfulltrúa tímabundið á meðan „hann er að íþyngja íslenska heilbrigðiskerfinu“ eins og Brynjar orðar það í bráðskemmtilegri færslu á Facebook.
„Má segja að hann hafi verið á lífsleikninámskeiði hjá mér þessar vikur en nú er svo komið að Soffía er búin að klára öll kvíðalyfin sem til eru á heimilinu og farin að bryðja þau lyf sem hendi eru næst,“ segir Brynjar og vísar þar til skáldlegrar útgáfu af eiginkonu sinni.
„Lífsleikninámskeið okkar bræðranna eru með gjörólíku sniði. Markmið aðalnámskrár hjá okkar manni á Spáni er að undirbúa nemendur í að vera farsælir drykkjumenn. Þar er lögð sérstök áhersla á mikilvægi dagdrykkju, einkum fyrir eldri borgara. Hún slái mjög á kvíða og auðveldi svefn. Önnur mikilvæg námsgrein hjá okkar manni á Spáni er að auka færni nemandans í að koma sér undan öllum heimilisverkum enda verði öll slys á heimilum við slíka iðju. Því sé mikilvægt að hreyfa sig almennt sem allra minnst og ganga aldrei lengra í einu en á næstu ölstofu.“
Áherslan er þó allt önnur á lífsleikninámskeiðinu heima hjá Brynjari.
„Þar er lögð áhersla að kenna helstu atriði varðandi salernisferðir, t.d. að pissa ekki alltaf út fyrir klósettskálina og sturta niður og þvo sér um hendur að henni lokinni. Þá er reynt að kenna nemandanum um heilbrigt matarræði og að öl og snafs sé óþekkt á venjulegum heimilum sem hluti af morgunverði. Einnig er lögð áhersla á hreyfingu en okkar maður á Spáni náði að setja heimsmet í hægagangi þegar hann labbaði kringum Tjörnina á fjórum klukkustundum sléttum.“
Árangurinn er þó mismikill:
„Munurinn á okkur bræðrunum er að ég hef lært talsvert á hans lífsleikninámskeiðum en hann ekki neitt á mínum, sem þó eru miklu faglegri enda Soffía aðstoðarkennari. Úr því hefur skapast ágreiningur hvort um sé að kenna gæði kennslunnar eða námsgetu nemandans.“
Gústaf svaraði svo bróður sínum:
„Iss, hér er allt úr lagi fært. Lífsleikninámskeiðið hefur verið það strangasta sem okkar maður hef haldið í seinni tíð og kröfur miklar. Til stóð að útskrifa borgarfulltrúann með 4,9 og er það falleinkunn, en á síðustu stundu tókst honum að halda ágæta ræðu í borgarstjórn bláedrú, og kjafta sig með glans upp úr pólitískum keldum í fjölmiðlum og alls konar hlaðvörpum, sem varð til þess að hann náði 7,5 og var Inga Sæland höfð til ráðgjafar um einkunn. Ljóst er að borgarfulltrúinn þarf að herða sig verulega fyrir næsta námskeið, sem verður haldið er líða tekur að vori. Ekki seinna vænna.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗