Krónan kynnir sjálfsafgreiðslukassa fyrir blinda og hjólastólanotendur

Krónan hefur hannað nýja gerð sjálfsafgreiðslukassa með það að markmiði að gera fleirum kleift að versla sjálfstætt. Kassarnir eru sérstaklega útfærðir með þarfir blindra og sjónskertra og fólks sem notar hjólastól í huga og eru fyrstu kassarnir komnir upp í Krónunni Lindum, Grafarholti og á Höfn. Krónan hefur átt í virku samtali við Öryrkjabandalag Íslands sem hafa komið að prófunum og veitt endurgjöf.

Um er að ræða fyrstu sjálfsafgreiðslukassana hér á landi sem eru sérstaklega hannaðir með aðgengi blindra og sjónskertra og fólks í hjólastól að leiðarljósi.

Markmiðið er allir geti gengið frá sínum innkaupum á eigin forsendum og án þess að þurfa að reiða sig á aðstoð starfsfólks eða annarra. Hönnun kassanna tekur mið af því að hefðbundnir sjálfsafgreiðslukassar hafa ekki alltaf hentað öllum. Fyrir blinda og sjónskerta getur verið erfitt að nota snertiskjá án sjónrænnar leiðsagnar og fyrir fólk í hjólastól geta hæð, staðsetning skjás og aðgengi að greiðslubúnaði skapað hindranir.

Nýju kassarnir eru meðal annars útbúnir með sérstöku snerti- og takkaborði sem gerir blindum og sjónskertum kleift að stýra afgreiðslunni án þess að treysta eingöngu á snertiskjá. Jafnframt veitir kassinn talandi leiðsögn og les upp upplýsingar í gegnum afgreiðsluferlið, þannig að viðskiptavinir geti sjálfir framkvæmt fleiri skref innkaupanna, allt frá því að skanna vörur til þess að greiða fyrir þær.

Við hönnun kassanna hefur einnig verið hugað sérstaklega að aðgengi fólks í hjólastól. Þar skiptir hæð afgreiðsluborðsins meðal annars máli og að ná auðveldlega til skjásins. Einnig þarf að huga að staðsetningu poka, ruslakörfu og annarra hluta kassans svo þeir hindri ekki aðgengi.

„Okkur finnst mikilvægt að allir viðskiptavinir geti verslað á eigin forsendum og upplifi sjálfstæði í verslunarferðinni. Þess vegna lögðum við áherslu á að þróa þessa lausn með fólkinu sem þarf á henni að halda og hlusta á þeirra reynslu,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab