Nadía Katrín og Gunnar selja í Stykkishólmi
Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 24. nóvember 2026 14:49
Nadía og Gunnar. Mynd: Facebook.
Hjónin Nadía Katrín Banine og Gunnar Sturluson hafa sett íbúð sína í Stykkishólmi á sölu. Íbúðin er 158,3 fermetrar á 2. hæð ásamt bílskúr í tvíbýlishúsi sem byggt var árið 1956. Ásett verð er 64,9 milljónir.
Nadia er innanhússhönnuður og löggiltur fasteignasali og Gunnar lögmaður og einn eigenda Logos lögmannsstofu.
Íbúðin er fjögurra herbergja og var hún endurnýjuð að miklu leyti árið 2024 af kostgæfni með fallegan heildarsvip að leiðarljósi í anda tímabils hússins. Samkvæmt þinglýstum eignarskiptasamning eru heildarfermetrar 157,7 fm. Þar af er íbúðin skráð 128,4 fm og bílskúrinn 29,3 fm.
Íbúðin skiptist í forstofu, hol sem tengir saman öll rými efri hæðar: stofa og borðstofa eru í opnu og björtu rými með gluggum á þrjá vegu, þar af er einn franskur gluggi, einstakur bogadreginn veggur með fallegu veggfóðri, loftalistar upp við loft og rósettur í lofti, úr borðstofu er útgengt út á svalir, og eldhús.
Mynd: Valhöll fasteignasala.
Mynd: Valhöll fasteignasala.
Mynd: Valhöll fasteignasala.
Mynd: Valhöll fasteignasala.
Á efri hæð eru tvö rúmgóð svefnherbergi, útgengt er á svalir úr öðru þeirra, og baðherbergi,
Mynd: Valhöll fasteignasala.
Mynd: Valhöll fasteignasala.
Á neðri hæð er rými með sérinngangi sem í dag er nýtt sem svefnherbergi. Innangengt er úr herberginu í rúmgott þvottahús og inn af því er lítil geymsla undir stiga. Mjög rúmgóður frístandandi bílskúr með inngönguhurð og gluggum.
Eignin er staðsett í stuttu göngufæri frá miðbænum í Stykkishólmi og höfninni þar sem finna má fjölbreytta veitingastaði, söfn, verslanir og fleira. Í bænum er skemmtilegur golfvöllur.
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗