Haaland í lagadeilum við pólskan rafvirkja
Erling Haaland, framherji Manchester City, á í lagadeilum við pólskan rafvirkja sem hafði skráð eftirnafn knattspyrnumannsins sem vörumerki.
Haaland uppgötvaði málið árið 2023 þegar hann ætlaði að skrá vörumerki sitt innan Evrópusambandsins. Þá hafði rafvirkinn Michael Was þegar tryggt sér réttinn á nafninu „Haaland“.
Skráningin náði meðal annars yfir íþróttafatnað, próteinvörur, orkudrykki, áfengi, leikföng og jafnvel kvennærfatnað.
Was, sem starfar í Noregi, hélt því fram að nafnið væri skammstöfun fyrir „High Advanced Activity Land“.
Sérfræðingar í hugverkarétti féllust hins vegar ekki á þau rök og töldu hann hafa reynt að nýta sér frægð knattspyrnumannsins í eigin þágu.
Vörumerkjaskráningin var því felld úr gildi en Was hefur óskað eftir að þeirri niðurstöðu verði hnekkt.
Lögmenn Haaland halda því fram að rafvirkinn hafi verið í vondri trú þegar hann skráði nafnið.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Haaland stendur í lagadeilum vegna ímyndar sinnar. Fyrr á árinu fór hann í mál við norskt flugfélag sem notaði einkennandi hárgreiðslu hans í auglýsingu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗