Syrgjandi móðir fékk enga miskunn - Algjör andlegur og líkamlegur vanmáttur eftir barnsmissi dugði ekki til

Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur vísað kæru konu, sem synjað var um greiðslur frá Vinnumálastofnun í sorgarleyfi, frá af þeim sökum að hún hafi borist að loknum kærufresti. Konan skýrði það með því að eftir að hafa misst barn sitt skyndilega hafi hún vegna algjörs líkamlegs og andlegs vanmáttar ekki haft nokkra getu til að standa í að leggja kæruna fram. Nefndin taldi hins vegar þær skýringar ekki duga til að taka kæruna til greina.

Þann 1. apríl hafnaði Vinnumálastofnun umsókn konunnar um greiðslur í sorgarleyfi á þeim forsendum að hún uppfyllti ekki skilyrði laga um sorgarleyfi um þátttöku á innlendum vinnumarkaði.

Konan lagði fram kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála undir lok júlí. Henni var þá tilkynnt að kærufrestur væri liðinn en boðið að færa rök fyrir því að skilyrði stjórnsýslulaga um að taka kæruna samt fyrir væru uppfyllt.

Í skýringum konunnar kom fram að töfin á innsendingu kærunnar ætti sér fyllilega afsakanlegar og skiljanlegar skýringar sem rekja mættu til algjörs andlegs og líkamlegs vanmáttar hennar. Hún hafi orðið fyrir alvarlegu áfalli og sorg vegna skyndilegs barnsmissis. Í kjölfar þess hrikalega áfalls hafi konan verið algjörlega andlega og líkamlega óvinnufær. Hún hafi því hvorki haft burði né getu til að sinna stjórnsýsluerindum eða gæta hagsmuna sinna á nokkurn hátt. Læknisvottorð því til staðfestingar yrði lagt fram yrði eftir því leitað. Vegna algjörs vanmáttar konunnar hafi umboðsmaður hennar, sem jafnframt sé móðir hennar, þurft að taka algjörlega við umsóknarferlinu og sækja um sorgarleyfið fyrir hennar hönd, auk þess að kalla eftir skýringum og mati Vinnumálastofnunar í kjölfarið. Allt ferlið hafi því hvílt herðum á móðurinnar sem samhliða hafi staðið í djúpri fjölskyldusorg og stuðningi við dóttur sína. 

Þrjár vikur

Bent var á að kæran hefði borist þremur vikum eftir að kærufrestur rann út og að í ljósi þeirra hörmulegu andlegu og líkamlegu aðstæðna sem fjölskyldan hafi mátt þola yrði að teljast fullkomlega afsakanlegt að innsending kærunnar hafi dregist um þennan skamma tíma.

Í skýringunum var því einnig haldið fram að málið varðaði verulega ríka hagsmuni fyrir konuna. Synjun Vinnumálastofnunar gengi þvert gegn markmiðum laga um sorgarleyfi.

Fram kom einnig að konan hefði ásamt eiginmanni sínum verið í því ferli að koma aftur undir sig fótunum á Íslandi eftir námsdvöl erlendis við andlát barns þeirra. Fjölskyldan hafi nýlega fest kaup á íbúð miðað við áætlaðar vinnutekjur. Höfnun á sorgarleyfi skildi þau eftir í algjöru tekjuleysi á sama tíma og fjölskyldan gengi í gegnum dýpstu sorg. Tekjumissirinn bættist ofan á lamandi áfall foreldra og eftirlifandi eldri bróður. Höfnunin stríddi þannig gegn sjálfum tilgangi laga um sorgarleyfi, sem ætti að tryggja framfærslu foreldra í þessari stöðu og gefa þeim þannig tíma til að vinna úr eigin sorg og vera til staðar fyrir eftirlifandi systkini.

Í skýringunum var einnig lýst þátttöku konunnar á vinnumarkaði eftir að hún flutti aftur til landsins eftir nám og fæðingarorlof erlendis. Hún hafi verið ráðin í tímabundið starf í vaktavinnu til að brúa bilið þar til hún hæfi nýtt starf. Fyrrnefnda ráðningin hafi hins vegar verið dregin til baka en sú ráðning og undirritaður ráðningarsamningur við hinn vinnuveitandann sýndi fram á hún hafi verið með fasta og virka tengingu við íslenskan vinnumarkað og félli klárlega í hóp þeirra sem lögum um sorgarleyfi væri ætlað að vernda. Það að tímasetning andláts barnsins leiddi til þess að umsókn um sorgarleyfi væri synjað, þegar ljóst væri af heildstæðu mati á kringumstæðum að konan félli klárlega í hóp þeirra sem lögunum hafi verið ætlað að vernda, stríddi gegn réttlætiskennd. Það væri sanngirnismál og samfélagslega mikilvægt að úrskurðarnefndin sýndi sveigjanleika og mæti þessar sérstöku aðstæður í stað þess að vísa málinu frá á grundvelli formsatriða.

Nei

Í niðurstöðu úrskurðarnefndar velferðarmála segir að samkvæmt stjórnsýslulögum skuli vísa stjórnsýslukæru frá ef hún berist að loknum kærufresti nema afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Nefndin segir að eftir synjun Vinnumálastofnunar á umsókn konunnar hafi henni verið leiðbeint um að hún gæti lagt fram kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála og að til þess hefði hún þriggja mánaða frest. Nefndin segist telja skýringar konunnar á því að kæran hafi borist að loknum kærufresti, algjör andlegur og líkamlegur vanmáttur í kjölfar barnsmissis, ekki þess eðlis að unnt sé að líta svo á að afsakanlegt sé að kæran hafi ekki borist fyrr. Í úrskurði nefndarinnar eru hins vegar ekki færð rök fyrir þessu mati hennar á þessum skýringum konunnar.

Nefndin segir einnig að þá verði heldur ekki talið að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, enda verði ekki séð að ágalli sé á hinni kærðu ákvörðun sem gæti leitt til ógildingar hennar.

Kæru konunnar var því vísað frá og hún fær þar með engar greiðslur í sorgarleyfinu.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab