Aðsend grein: Tálsýnin um óhjákvæmileika EES-samningsins
Aðsend grein úr Morgunblaðinu:
Við Íslendingar skiptum EES-samningnum út fyrir víðtækan fríverzlunarsamning við Bretland, annað stærsta viðskiptaland okkar á eftir Bandaríkjunum, fyrir fjórum árum án þess að neitt færi á hliðina í viðskiptum landanna. Raunar tókst svo vel til að jafnvel Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, hefur ítrekað viðurkennt að hagsmunir lands og þjóðar hafi verið tryggðir með samningnum. Það var að auki gert án þess að þurfa að taka einhliða upp íþyngjandi regluverk frá viðsemjandanum og framselja vald yfir íslenzkum málum til hans líkt og í tilfelli EES-samningsins.
Fyrir helgi birtist grein á Vísi eftir Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, þar sem hann sagði hugmyndir um að skipta EES-samningnum út fyrir fríverzlunarsamning við Evrópusambandið vera hættulega tálsýn. Vildi hann meina að til þess að kanna möguleikann á slíkum samningi þyrfti fyrst að segja EES-samningnum upp. Þeir sem töluðu fyrir uppsögn hans yrðu að benda á valkost við hann og regluverk skipti ekki síður máli í viðskiptum en tollar. Þá væri EFTA-stoð samningsins sjálfstæð gagnvart stofnunum sambandsins, ólíkt því sem raunin væri í samningum Sviss og Bretlands við það.
Þyrftum ekki að segja EES upp
Fyrir það fyrsta er ekki rétt hjá Baudenbacher að segja þyrfti upp EES-samningnum til þess að kanna möguleikann á víðtækum fríverzlunarsamningi við Evrópusambandið í hans stað. Ekkert í EES-samningnum bannar okkur að leita hófanna um annað fyrirkomulag, enda höfum við ekki framselt formlegt vald okkar til þess að semja um viðskipti með aðildinni að samningnum, líkt og ríki Evrópusambandsins hafa gert með veru innan þess. Við værum þannig alls ekki að setja EES-samninginn í uppnám með því að láta reyna á slíkan samning, þvert á það sem Baudenbacher heldur fram og er hryggjarstykkið í grein hans.
Til að mynda þurftu þannig stjórnvöld í Sviss ekki að segja upp tvíhliða samningum sínum við Evrópusambandið til þess að hefja viðræður við það um einn samning í stað þeirra. Eins þurftu brezkir ráðamenn ekki að segja upp samningnum sem samið var um eftir útgöngu Bretlands úr sambandinu til þess að hefja viðræður um endurskoðun hans. Ef Evrópusambandið færi hins vegar fram á það að Ísland segði EES-samningnum upp áður en hægt yrði að hefja viðræður um fríverzlunarsamning væri það þvert á hann, í andstöðu við hagsmuni sambandsins og einungis frekari rök fyrir því að endurskoða aðildina að honum.
Reyndi sjálfur að sannfæra Breta
Valkosturinn við EES-samninginn liggur fyrir. Víðtækur fríverzlunarsamningur eins og ríki heimsins kjósa alla jafna að semja um sín á milli. Það er engin biðröð ríkja eftir aðild að EES-samningnum eða hliðstæðum samningum. Hvað varðar Svisslendinga höfnuðu þeir aðild að EES-samningnum í þjóðaratkvæði 1992 og hefur Evrópusambandið fyrir vikið á liðnum árum þess í stað reynt að gera hliðstæðan samning við þá. Sömuleiðis vildi sambandið fá Breta til þess að vera áfram aðilar að EES-samningnum eftir útgöngu þeirra úr því en án árangurs. Sjálfur reyndi Baudenbacher að sannfæra brezka ráðamenn um það.
Hvers vegna hafa Sviss og Bretland ekki sótzt eftir aðild að EES-samningnum sé það rétt að hann sé betri en þeirra samningar við Evrópusambandið? Bretar, Japanir og Kanadamenn hafa samið um mun hagstæðari tollakjör við sambandið í gegnum fríverzlunarsamninga en felast í EES-samningnum. Vissulega eru tollar ekki það eina sem máli skiptir en íþyngjandi regluverkið sem við tökum upp í gegnum samninginn dregur ekki aðeins úr samkeppnishæfni landsins, eins og ríkja Evrópusambandsins, heldur þvælist sífellt meira fyrir viðskiptum við afganginn af heiminum sem er miklu fremur framtíðarmarkaðir.
Mikill fulltrúi lands og þjóðar það
Fullyrðing Baudenbachers um að EFTA-stoð EES-samningsins, EFTA-dómstóllinn og Eftirlitsstofnun EFTA (ESA), sé sjálfstæð og óháð Evrópusambandinu stenzt alls ekki skoðun. Veruleikinn er sá að samkvæmt samningnum og afleiddum samningi um stofnun dómstóls og eftirlitsstofnunar ber EFTA-dómstólnum að taka mið af dómaframkvæmd dómstóls sambandsins og ESA að taka mið af ákvörðunum framkvæmdastjórnar þess. Ekki öfugt þó að dómstóll Evrópusambandsins hafi stundum kosið að taka mið af einstökum dómum EFTA-dómstólsins. Honum ber hins vegar engin skylda til þess, ólíkt EFTA-dómstólnum.
Fram kemur í grein Baudenbachers að í gegnum EES-samninginn hafi Ísland eigin fulltrúa í stjórn ESA og dómara við EFTA-dómstólinn. Með stjórnarmanni Íslands hjá ESA vísar hann til Árna Páls Árnasonar, fyrrverandi formanns Samfylkingarinnar, sem stendur nú fyrir málaferlum gegn Íslandi vegna bókunar 35 við samninginn. Mikill fulltrúi lands og þjóðar þar á ferðinni! Vitanlega verður Árni Páll ekki um aldur og ævi í stjórninni en vera hans þar er til marks um gagnsleysi þessarar röksemdar. Hérlendur dómari við dómstólinn er eins ekki fulltrúi íslenzkra hagsmuna enda vitanlega ekki bundinn af þeim.
Kaus að minnast ekki á bókun 48
Vísun Baudenbachers í 111. grein EES-samningsins, sem fjallar um lausn ágreinings um túlkun hans í sameiginlegu EES-nefndinni og þann möguleika að vísa slíkum málum til dómstóls Evrópusambandsins með samþykki EFTA/EES-ríkjanna, er síðan áhugaverð. Einkum þar sem hann kaus að minnast ekki á bókun 48 þar sem segir að lausn slíkra mála megi ekki hafa áhrif á dómsúrlausnir dómstóls sambandsins. Sem sagt ekki fara gegn þeim. Það sama gildir ekki um EFTA-dómstólinn. Enda ljóst að ef ágreiningur væri á milli dómstólanna um úrlausn máls væri ekki hægt að fara að niðurstöðum þeirra beggja.
Með öðrum orðum er þannig beinlínis gert ráð fyrir ríkari stöðu stofnana Evrópusambandsins í EES-samningnum. Til að mynda hvað varðar skyldu EFTA-dómstólsins og ESA til þess að taka mið af ákvörðunum hliðstæðra stofnana sambandsins og að lausnir á ágreiningi megi ekki vera í andstöðu við niðurstöður dómstóls þess. Við það bætist að það verklag hefur fest sig í sessi að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sendi ESA uppkast að ákvörðunum (e. draft decisions) sem eftirlitsstofnuninni er gert að framfylgja og hefur takmarkað svigrúm til þess að bregða út af. Ákvarðanirnar eru þannig í reynd sambandsins.
Snýst um hagsmuni þjóðarinnar
Full ástæða er til þess að þakka Baudenbacher fyrir mikilvægt framlag hans í kosningabaráttunni í aðdraganda þjóðaratkvæðisins um Evrópusambandið í lok sumars. Við erum samstiga um það að hagsmunum Íslands sé bezt borgið utan sambandsins þó að við séum ekki eins sammála um ágæti EES-samningsins. Færa má rök fyrir því að samningurinn hafi flýtt fyrir ýmsum framfaramálum hér á landi á upphafsárum hans, einkum vegna þess að íslenzkt þjóðfélag var mjög aftarlega á merinni í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar, en í seinni tíð hefur hann hins vegar í vaxandi mæli staðið okkur fyrir þrifum.
Ég skil auðvitað vel að Baudenbacher sé mikið í mun að koma EES-samningnum til varnar sem hann hefur varið drjúgum hluta starfsævinnar í að fjalla um og stór hluti hans sérfræðiþekkingu byggist á. Frá íslenzkum sjónarhóli hlýtur hins vegar málið alltaf að snúast um hagsmuni Íslands og íslenzku þjóðarinnar en ekki einstaka samninga, sama hversu hagstæðir einhverjir kunna að telja þá vera. Þeir eru vitanlega aðeins verkfæri og geta sem slíkir aldrei orðið markmið í sjálfum sér. Ef hægt er að tryggja hagsmuni lands og þjóðar betur með öðrum hætti hlýtur fyrir vikið að vera rétt að kanna það til hlítar.
Hjörtur J. Guðmundsson er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗