Burger King snýr aftur til Íslands
Burger King og 1954 ehf. hafa gert samning um uppbyggingu og rekstur Burger King-veitingastaða á Íslandi. Samkvæmt samningnum er stefnt að opnun fimm veitingastaða á næstu fimm árum. Áætlað er að fyrsti staðurinn opni vorið 2027 á þjónustustöð N1 við Bíldshöfða í Reykjavík.
Í tilkynningu segir að félagið 1954 ehf. hafi sérleyfi Burger King á Íslandi. Að félaginu standa N1 og Skúli Gunnar Sigfússon, sem hefur áralanga reynslu af veitingarekstri á Íslandi.
„Margir Íslendingar muna eftir Burger King frá fyrri tíð hér á landi og enn fleiri þekkja vörumerkið úr ferðalögum erlendis. Við erum stolt af því að færa Burger King aftur til Íslands,“ er haft eftir Magnúsi Hafliðasyni, framkvæmdastjóri N1, í tilkynningunni.
Fyrsti staðurinn verður við Bíldshöfða
Fyrsti veitingastaðurinn verður á þjónustustöð N1 við Bíldshöfða og mun bjóða upp á bæði veitingasölu inni á staðnum og bílalúgu. Staðsetningin er við eina af helstu umferðaræðum höfuðborgarsvæðisins og býður því upp á gott aðgengi fyrir viðskiptavini, hvort sem þeir vilja njóta máltíðar á staðnum eða grípa með sér logagrillaðan hamborgara á ferðinni.
Undirbúningur að opnun fleiri veitingastaða er þegar hafinn og verða frekari áform kynnt síðar.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗