Ný gögn um söluáform FIFA

Gianni Infantino var gagnrýndur harðlega fyrir áformin.

Gianni Infantino var gagnrýndur harðlega fyrir áformin. AFP/Karim Jaafar

Hætt var við áform FIFA um að selja hlut í viðskiptastarfsemi sinni en þau hefðu getað fært dótturfélagi réttindi að knattspyrnumótum sambandsins, þar á meðal heimsmeistaramótinu, til allt að 96 ára. Þetta kemur fram í gögnum sem The Guardian hefur séð.

Fyrirhugað félag var metið á 20 milljarða dollara. Samkvæmt hvatakerfi hefðu stjórnendur þess getað fengið allt að 5% af því virði sem færi umfram þetta upphaflega verðmat.

FIFA neitaði því að forsetinn Gianni Infantino, sem átti að verða stjórnarformaður dótturfélagsins, hefði getað hagnast persónulega á áformunum.

„Hugsanlegt hvatakerfi var eingöngu ætlað stjórnendum FFE, en embættismenn FIFA hefðu ekki getað verið í þeim hópi,“ sagði talsmaður FIFA við The Guardian.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab