Íslenski táningurinn að slá í gegn
Vernharður „Venni“ Ravnaas, 14 ára, var meðal fremstu ökumanna í unglingaflokki í öllum þremur æfingalotunum fyrir heimsbikarkeppni FIA í Arrive and Drive-kartakstrinum í Malasíu um helgina. Hann hafði aldrei áður ekið á LYL International-brautinni, ekki einu sinni í hermi.
Venni tryggði sér sætið í keppninni á Evrópumóti FIA í Póllandi í sumar, þar sem hann varð fyrstur Íslendinga til að keppa í FIA Karting. Hann féll niður í 17. sæti á fyrstu hringjum úrslitanna en vann sig upp í það ellefta.
Alls tóku 78 ökumenn frá 27 þjóðum þátt í heimsbikarmótinu. Allir óku eins kartbílum og vélum var skipt milli keppenda yfir helgina til að jafna aðstæður. Rúmir þrír mánuðir voru frá síðustu keppni Venna en hann hafði æft daglega í ökuhermi í haust.
„Það er stór stund fyrir íslenskar akstursíþróttir að eiga fulltrúa á heimsbikarmóti FIA. Venni hefur sýnt að hann á heima í þessum hópi og við fylgjumst spennt með um helgina,“ sagði Jón Þór Jónsson, formaður AKÍS, í tilkynningu fyrir mótið.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/50/1695022.jpg)