Gugga í Gúmmíbát féll fyrir óþekktum fótboltamanni

Helber Josua Catona og Gugga í Gúmmíbát.

Helber Josua Catona og Gugga í Gúmmíbát. mbl.is/Ólafur Árdal

Skemmtikrafturinn Guðrún Svava Egilsdóttir, betur þekkt sem Gugga í Gúmmíbát, er gengin út. Gugga hefur í nokkur ár verið ein þekktasta einhleypa kona landsins fann ástina í örmum Helber Josua Catano Catano. Vísir greindi fyrst frá sambandinu. 

Gugga og Helber Josua hafa sést saman víða að undanförnu samkvæmt heimildum Smartlands. Þau mættu til að mynda saman á Moulin Rouge í Borgarleikhúsinu í september. Þau hafa einnig sést borða saman á Kastrup. 

Hver er maðurinn?

Gugga í Gúmmíbát hefur á nokkrum árum heillað landsmenn upp úr skónum. Hún er fædd árið 2003 og því þremur árum eldri en kærastinn. Helber Josua er úr Hlíðunum og er tvítugur. Hann spilaði upphaflega knattspyrnu með Val. Á undanförnu hefur hann spilað með Fylki og B-liði Fylkis, Elliða. Í sumar spilaði hann með Víkingi Ólafsvík.

Helber Josua er ekki jafnvirkur á Instagram og kærasta sín en hann hefur birt fáar myndir á Instagram og er með rúmlega 1.300 fylgjendur sem er ágætt en lítið miðað við Guggu í Gúmmíbát sem er með rúmlega 82 þúsund fylgjendur. 

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab