Loji mætti í Millet-úlpu
Baldur Helgason opnaði heillandi myndlistarsýningu í Þulu á dögunum og var vel mætt. Loji Höskuldsson mætti í eitursmart Millet-úlpu en slíkir gripir eru komnir aftur í móð. Helgi Björnsson mætti með loðkraga og Tolli Morthens var eins og nýkominn af tískusýningu með derhúfu og sjal um hálsinn á meðan Sjón vann með munstur ofan á munstur.
„Að vera málari er vinna eins og hver önnur, nema kannski með aðeins meiri terpentínu og óvissu. Málarinn vinnur, bíður, dreymir og efast. Dagarnir renna saman í endurtekningu þar sem sköpunin er í senn frelsi og kvöð. Ósýnileg átök og litlir helgisiðir verða hluti af daglegu lífi til að mæta þörfinni fyrir að skapa,“ segir Baldur Helgason og bætir við:
„Þessi átök geta reynst lamandi þegar kemur að því sem ætti að vera jafn einfalt og að kreista smá málningu úr túpu, sulla svolítið í terpentínu og hörfræolíu og byrja að mála.
Í Málararnir beini ég sjónum mínum að hversdegi listamannsins, verkfærunum, rútínunni og því hugarástandi sem fylgir sköpuninni,“ segir hann.
Þarna má sjá Loja Höskuldsson, Skúla Gunnlaugsson, Braga Árnason og Helgu Páley Friðþjófsdóttur ásamt fleirum. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Baldur Helgason, Þorvaldur Jónsson og Ingunn Jónasdóttir ásamt dóttur þeirra. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
Listamennirnir Sara Björg Bjarnadóttir, Patty Spyrakos og Kristín Ríkharðsdóttir. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir
内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
















