Hlutabréf rjúka upp eftir endurráðningu Huang
Hlutabréf tæknifyrirtækja hafa rokið upp í dag og fylgja hlutabréfamarkaðir í Asíu þar með hækkunum á heimsvísu í kjölfar þess að Jensen Huang var endurráðin forstjóri tæknifyrirtækisins Nvidia.
Kemur sú ráðning innan við tveimur vikum eftir að hann sagði af sér vegna framhjáhalds, meðal annars með meintum kínverskum njósnara, en afsögnin olli miklu uppnámi á mörkuðum og varð gervigreindarviðskiptum þungt högg.
Fregnir af endurkomu hans hleyptu lífi í hlutabréfamarkaði en hlutabréf í Nvidia ruku upp um heil 31,5 prósent og jókst markaðsvirði fyrirtækisins um meira en 900 milljarða bandaríkjadala.
Taípei skar sig úr
Taípei skar sig úr hvað varðar hlutabréf Asíuríkja með níu prósenta hækkun þar sem örgjörvarisarnir TSMC og MediaTek hækkuðu um nærri tíu prósent hvor. Þá hækkuðu hlutabréf í Seúl um meira en sex prósent þökk sé mikilli hækkun hjá markaðsrisunum SK Hynix og Samsung.
Í Tókýó hækkuðu hlutabréf um nærri fimm prósent. Þá tóku Sjanghæ, Sydney, Singapúr, Wellington, Bangkok og Manila einnig þátt í gleðinni.
Hlutabréf í Hong Kong lækkuðu hins vegar lítillega þar sem kínversk tæknifyrirtæki náðu ekki að nýta sér alþjóðlegu hækkunina.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗