Prufusigling í Færeyjum vel heppnuð
Gert er ráð fyrir að Barði NK sigli heim frá Færeyjum eftir tvær vikur eða svo, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.
„Eins og kunnugt er varð sprenging í vélarúmi uppsjávarveiðiskipsins Barða NK skammt frá Færeyjum þann 12. júní sl. og kom upp mikill eldur í kjölfar hennar,“ segir í færslu SVN.
„Skipið hafði verið í vélarupptekt í Þórshöfn í Færeyjum og var á heimleið að henni lokinni þegar sprengingin átti sér stað.“
Fram kemur að áhöfn Barða hafi brugðist hárrétt við þeirri miklu hættu sem skapaðist um borð í skipinu og forðað því að mjög illa færi.
Barði NK kemur til Þórshafnar síðastliðið laugardagskvöld að lokinni prufusiglingu. Ljósmynd/SVN/Grétar Örn Sigfinnsson
„Barða rak stjórnlaust í rúmar þrjár klukkustundir eftir að sprengingin varð en þá kom færeyskt varðskip á vettvang og dró Barða til Þórshafnar.“
Viðgerð á skipinu í Þórshöfn hefur staðið yfir síðan þá.
Haft er eftir Grétari Erni Sigfinnssyni, rekstrarstjóra útgerðar Síldarvinnslunnar, sem staddur er í Þórshöfn, að vinna við viðgerðina hafi gengið vel og að nú sjái fyrir lok hennar.
„Farið var í átta til níu tíma prufusiglingu síðastliðinn laugardag og gekk hún vel,“ segir Grétar.
Komið hafi í ljós nokkur smáatriði sem þurft hafi að sinna en í grundvallaratriðum hafi allt reynst í fínasta lagi.
„Fyrir utan þetta lítilræði sem þarf að skoða og lagfæra á eftir að ljúka við að mála vélarrúmið og önnur rými sem urðu fyrir skemmdum.“
Grétari sýnist að flestum verkum ljúki í þessari viku.
„Ég reikna með að Barði sigli heim til Neskaupstaðar eftir tvær vikur eða svo,” segir hann.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

