Freyr á leið í enska boltann?
Freyr Alexandersson er á meðal þeirra sem veðbankar telja líklegasta til að verða næsti knattspyrnustjóri velska knattspyrnufélagsins Swansea City, samkvæmt WalesOnline.
Freyr hefur áður verið orðaður við velskt félag sem leikur á Englandi en hann var talinn líklegur til að taka við Cardiff City árið 2024.
Ashley Williams stýrir Swansea áfram til bráðabirgða þar til nýr stjóri er fundinn.
Staðan losnaði eftir að Vitor Matos yfirgaf Swansea í síðustu viku til að taka við stjórn franska félagsins Strasbourg.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗