Hæddust að feðgunum eftir árásina
Þrír eru með stöðu sakbornings í máli sem varðar líkamsárás á feðga þar sem meðal annars var beitt glerflösku að vopni.
Þetta staðfestir Sigrún Kristín Jónasdóttir, lögreglufulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.
Hún segir rannsókn málsins miða vel og að skýr mynd sé komin á atburðarásina. Af verknaðarlýsingunni að dæma sé um stórfellda líkamsárás að ræða.
Tengsl eru sögð vera á milli sonarins og gerenda og þá hafi faðirinn verið viðstaddur til að vera syni sínum innan handar.
Óhugnanlegt myndefni
Árásin átti sér stað að kvöldi 26. september. Eins og greint hefur verið frá hlaut sonurinn áverka á höfði og var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttöku til frekari aðhlynningar.
Myndefni sem Vísir hefur undir höndum sýnir feðgana liggja flata á götunni. Ungur maður sem virðist hafa tekið þátt í árásinni tekur upp á síma sinn. Í upphafi myndbandsins beinir hann myndavélinni að sjálfum sér og sést þá að hann er með skíðagrímu eða buff með hauskúpumynd fyrir andliti sínu.
Hann snýr því næst myndavélinni við og sýnir soninn blóðugan í andliti og að því er virðist meðvitundarlausan.
„Hann er sofandi, bró,“ segir maðurinn áður en hann beinir myndavélinni að föðurnum sem er með meðvitund en er sjáanlega illa farinn.
„Gaur. Fokking sofandi bró. Put them to sleep. Sofðu vel G. Gaur, horfðu á andlitið á honum,“ segir hann og sýnir andlit föðurins sem er með blæðingu í auga.
Af myndefninu má jafnframt ráða að töluverður fjöldi ungmenna hafi verið á vettvangi. Þá heyrist í bakgrunni þegar viðstaddir eru hvattir til að taka til fótanna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗