Hvað fer í pakkann hans?
Hvort sem karlmaðurinn í lífi þínu á áhugamál eða ekki getur verið gaman að finna gjöf sem kemur honum á óvart og verður fljótt í uppáhaldi. Unsplash/Axwell Wallet
Hann á uppáhaldspeysu sem hefur séð betri daga, getur talað endalaust um áhugamálið sitt og segist svo ekki vilja neitt sérstakt í jólagjöf. Kannski er óskalistinn löngu tilbúinn og enginn vafi á því hvað á helst að vera í pakkanum. Hvort heldur sem er getur verið gaman að finna gjöf sem kemur honum á óvart og verður fljótt í uppáhaldi.
Áhugamálin eru oft góður staður til að byrja. Útivistarmaðurinn kann að meta góðan búnað, sá sem nýtur þess að elda hefur ef til vill augastað á einhverju í eldhúsið og öðrum finnst fátt betra en að koma sér vel fyrir með bók eða tónlist. Falleg flík, vönduð umhirða eða ný upplifun getur líka hitt beint í mark.
Stundum felst besta vísbendingin í einhverju sem hefur verið nefnt í framhjáhlaupi. Hlutur sem hann hefur skoðað en ekki keypt eða eitthvað sem hann langar að prófa þegar tími gefst til. Jólagjöfin getur orðið kærkomið tilefni til að láta verða af því.
Hér eru nokkrar fjölbreyttar gjafahugmyndir fyrir hann, hvort sem pakkinn á að nýtast í hversdeginum, fylgja honum í ævintýri eða bjóða upp á smá dekur.
Bose QuietComfort Gen2 er jólagjöf sem ætti að slá í gegn hjá flestum enda nýtast góð heyrnartól við ótal tilefni. Ljósmynd/Aðsend
Frábær hljóðgæði og öflug hljóðeinangrun
Tæknivörur eru vinsælar í jólapakkann og úrvalið hefur sjaldan verið fjölbreyttara. Hvort sem hann hefur áhuga á tónlist, heilsu eða nýjustu tækni er hægt að finna gjöf sem hentar hans áhugamálum.
Bose QuietComfort Gen2 er jólagjöf sem ætti að slá í gegn hjá flestum enda nýtast góð heyrnartól við ótal tilefni.
Hvort sem það er í vinnunni, á ferðinni eða við afslöppun heima bjóða heyrnartólin upp á frábær hljóðgæði og öfluga virka hljóðeinangrun sem dregur úr umhverfishljóðum. Þau eru þægileg við langvarandi notkun og rafhlaðan endist í allt að 24 klukkustundir á einni hleðslu.
Úlpan Skútustaðir er fóðruð með röggvafeldi úr íslenskri ull og ermar innihalda einangrun sem einnig er úr íslenskri ull. Ytra byrðið er úr klassísku bresku vaxefni. Ljósmynd/Aðsend
Hlý úlpa fyrir íslenskar aðstæður
Eftir rúm 20 ár kynnir íslenska hönnunarfyrirtækið Farmers Market sína fyrstu úlpu.
Úlpan Skútustaðir er fóðruð með röggvafeldi úr íslenskri ull og ermar innihalda einangrun sem einnig er úr íslenskri ull. Ytra byrðið er úr klassísku bresku vaxefni.
Útkoman er einstaklega hlý úlpa sem hrindir frá sér vætu og hentar því sérstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður.
Comfyballs er norskt nærfatamerki sem hefur slegið í gegn hjá íslenskum karlmönnum, enda eru þetta líklega mest útpældu nærbuxurnar á markaðnum. Ljósmynd/Aðsend
Comfyballs-nærbuxur handa þeim sem segist ekkert vanta
„Mig vantar ekkert,“ segir hann þegar þú spyrð hvað hann vilji í jólagjöf. Það auðveldar jólainnkaupin lítið. Þægilegar Comfyballs-nærbuxur gætu orðið uppáhaldsgjöfin hans í ár. Og ef hann á Comfyballs fyrir er alltaf pláss fyrir fleiri í skúffunni.
Comfyballs er norskt nærfatamerki sem hefur slegið í gegn hjá íslenskum karlmönnum, enda eru þetta líklega mest útpældu nærbuxurnar á markaðnum. Sérhannað sniðið heldur öllu á sínum stað og flatlock-saumarnir liggja sléttir að húðinni svo ekkert nuddast eða ertir.
Efnin eru í hæsta gæðaflokki, mjúk og endingargóð, og halda lögun sinni þvott eftir þvott. Cotton er klassíska bómullarlínan, Comfycel fyrir þá sem vilja silkimjúka tilfinningu og Performance fyrir ræktina, íþróttir og útivistina.
Nærbuxurnar fást stakar eða á pakkatilboðum. Viltu hafa gjöfina aðeins jólalegri? Þá eru líka til nærbuxur með jólamynstri og samstæð jólasett fyrir hana og hann.
Úrvalið er á comfyballs.is og í versluninni Daría & Herrar í Firði í Hafnarfirði. Gjöf sem hann notar á hverjum degi.
Hvort sem hann á sér uppáhaldslag sem fer alltaf á endurtekningu eða er sífellt að uppgötva eitthvað nýtt eru AirPods Pro 3 jólagjöf sem gefur honum góða ástæðu til að hlusta aðeins lengur. Ljósmynd/Aðsend
AirPods Pro 3 – Uppáhaldshljómurinn í jólapakkann
Gefðu honum AirPods Pro 3 og leyfðu uppáhaldstónlistinni að njóta sín. Öflug virk hljóðeinangrun dregur úr hávaðanum í kring svo hann geti sökkt sér í góða plötu, fylgst með spennandi hlaðvarpi eða notið rólegrar stundar í amstri dagsins.
Hljóðeinangrunin aðlagast umhverfinu og persónulegum óskum hans, á meðan næmir hljóðnemar draga úr óæskilegum hljóðum. Næsta kynslóð af Adaptive EQ sérsníður hljóminn að eyrnalögun hans og dregur fram smáatriðin í því sem hann hlustar á. Snjöll hljóðstyrksstilling lærir svo á hlustunarvenjurnar og aðlagast þeim með tímanum.
Hvort sem hann á sér uppáhaldslag sem fer alltaf á endurtekningu eða er sífellt að uppgötva eitthvað nýtt eru AirPods Pro 3 jólagjöf sem gefur honum góða ástæðu til að hlusta aðeins lengur.
Kóngurinn er sérsniðið gjafabréf en gildir hjá öllum samstarfsaðilum Gjafabréf.is, sem eru yfir 250 um allt land, svo það er alltaf eitthvað sem hentar. Ljósmynd/Aðsend
Frelsi til að velja sjálfur
Kóngurinn er gjafabréf fyrir manninn sem á allt, eða segist að minnsta kosti ekki vanta neitt. Í stað þess að giska þá gefur þú honum frelsi til að velja sjálfur. Kannski ný útivistarflík, góð steik, golfhringur eða rólegur dagur í spa. Hann ræður.
Kóngurinn er sérsniðið gjafabréf en gildir hjá öllum samstarfsaðilum Gjafabréf.is, sem eru yfir 250 um allt land, svo það er alltaf eitthvað sem hentar. Þú velur upphæðina og sendir gjafabréfið beint í símann.
Hentar pabbanum, afanum, bróðurnum, kærastanum eða vininum. Gjöf sem hittir alltaf í mark, því hann velur sjálfur og fær nákvæmlega það sem hann langar í. Það á bara að vera gaman að gleðja.
Nú er 20% afsláttur af völdum vörum á Dimmum dögum út 1. desember. Þetta er kjörið tækifæri til að tryggja þér eða þínum nánustu tímalausa gæðaskó á frábæru verði. Ljósmynd/Aðsend
Jólagjöfin fyrir hann fæst í Timberland!
Ertu að leita að hinni fullkomnu jólagjöf sem endist ár eftir ár? Hinir klassísku Timberland Boots hafa verið ómissandi fylgihlutur fyrir herra inn í veturinn í yfir 50 ár. Skórnir eru framleiddir úr hágæða leðri, fóðraðir að innan með Primaloft-fyllingu með stömum sóla sem henta einstaklega vel fyrir komandi vetrarlægðir. Þeir eru vatnsheldir, hlýir og veita einstakan stuðning við ökklann, hvort sem ferðinni er heitið í snjóinn eða á jólaröltið í bænum.
Ekki missa af frábæru tækifæri fyrir jólin! Nú er 20% afsláttur af völdum vörum á Dimmum dögum út 1. desember. Þetta er kjörið tækifæri til að tryggja þér eða þínum nánustu tímalausa gæðaskó á frábæru verði.
Kíktu við í Timberland í Kringlunni, Smáralind eða inni á Illo.is/timberland og tryggðu þér jólagjöfina sem slær í gegn í tíma
Gefðu betri svefn
Góður koddi er lykillinn að hvíld og góðri endurheimt.
Xleep-heilsukoddinn frá DUX hefur slegið í gegn og er vinsæl jólagjöf. Dúnfyllt koddaumslag umlykur háþróað smágormakerfi sem viðheldur lögun koddans og tryggir að háls og höfuð haldist í réttri línu við hryggjarsúlu.
Loftið umhverfis smágormana flytur líkamshita í burtu, tryggir loftun og heldur koddanum þínum svölum og þægilegum alla nóttina.
Gefðu betri svefn þessi jól. Xleep-heilsukoddinn fæst á verona.is og í versluninni Verona, Ármúla 17.
Ullarskyrturnar frá Farmers Market eru hlýjar og léttar og henta jafnt til útivistar og borgarlífs. Ljósmynd/Aðsend
Hlýjar og léttar ullarskyrtur
Ullarskyrturnar frá Farmers Market hafa notið mikilla vinsælda og fást nú í mörgum litum.
Þær eru hlýjar og léttar og henta jafnt til útivistar og borgarlífs.
Dineout gjafabréfið fæst í fallegri gjafaöskju, tilbúið beint undir jólatréð, eða rafrænt beint í símann. Ljósmynd/Aðsend
Gefðu honum matarupplifun í jólagjöf með Dineout-gjafabréfi
Það er eitthvað sérstakt við að gefa gjöf sem verður að góðri minningu. Með Dineout gjafabréfi fær hann að skapa sína eigin upplifun, hvort sem það er góður kvöldverður, notalegur brunch, kaffihúsaferð eða skemmtilegt kvöld með vinum. Hann velur sjálfur staðinn, tilefnið og með hverjum hann nýtur stundarinnar.
Gjafabréfið gildir hjá yfir 400 veitingastöðum um allt land, svo það er úr nógu að velja. Það besta er að gjafabréfið þarf ekki að nota allt í einu. Inneignina má nýta aftur og aftur þar til hún er uppurin, svo gjöfin getur haldið áfram að gleðja vikum og mánuðum saman, löngu eftir að jólin eru liðin.
Dineout gjafabréfið fæst í fallegri gjafaöskju, tilbúið beint undir jólatréð, eða rafrænt beint í símann. Nú getur þú pantað gjafaöskjuna á Dineout.is og fengið hana senda heim að dyrum hvert sem er á landinu. Þú velur það sem hentar best og gefur honum eitthvað skemmtilegt til að hlakka til.
Eitt gjafabréf, ótal möguleikar. Kláraðu jólagjöfina hans á Dineout.is.
Mjúkur og notalegur baðsloppur er tilvalin jólagjöf sem sameinar þægindi, notagildi og smá hversdagslegan lúxus. Ljósmynd/Aðsend
Jólagjöfin fyrir þann sem á allt
Það getur verið erfitt að finna réttu jólagjöfina fyrir þann sem segist eiga allt og vantar ekkert. En hvað með að gefa honum eitthvað sem hann getur notið á hverjum einasta degi?
Mjúkur og notalegur baðsloppur er tilvalin jólagjöf sem sameinar þægindi, notagildi og smá hversdagslegan lúxus.
Hvort sem það er eftir heita sturtu eða á köldum vetrarmorgni er fátt betra en að vefja sig inn í hlýjan og þægilegan slopp.
Sloppur er ekki bara til að hlýja sér heldur einnig til að njóta rólegra stunda heima við. Fullkomin gjöf fyrir pabba, kærastann, eiginmanninn eða afa sem á skilið smá dekur.
Hjá Betra Baki finnur þú eitt mesta úrval landsins af lúxusbaðsloppum frá þekktum gæðamerkjum á borð við BOSS, Ralph Lauren og Lacoste.
Aðventudagatalið er skemmtileg leið til að telja niður til jóla en í því leynast fjórar óvæntar fótboltatreyjur, ein fyrir hvern sunnudag aðventunnar. Treyjan getur verið frá hvaða félagsliði eða landsliði sem er og frá hvaða tímabili sem er. Ljósmynd/Aðsend
Happatreyjan - Fullkomna jólagjöfin fyrir fótboltaáhugamanninn
Ertu að leita að jólagjöf fyrir kærastann, kærustuna, pabba, bróðurinn eða vininn sem elskar fótbolta? Þá gæti Happatreyja verið akkúrat það sem þú ert að leita að!
Happatreyjur hafa slegið í gegn meðal íslenskra fótboltaáhugamanna. Hugmyndin er einföld en skemmtileg: Í hverjum kassa leynist ein ekta fótboltatreyja frá óvæntu félagsliði eða landsliði, sem getur verið frá hvaða tímabili sem er. Enginn veit hvaða treyja leynist í kassanum fyrr en hann er opnaður.
Fyrir þá sem vilja gera enn meira úr gjöfinni er einnig hægt að velja Happatreyjuáskrift, þar sem fyrsta treyjan er frí og hægt er að fá treyju á eins, tveggja eða þriggja mánaða fresti.
Það er fátt skemmtilegra en að sjá spennuna þegar kassinn er opnaður og komast að því hvaða lið leyndist inni.
Happatreyjur fást á Happatreyjur.is og í öllum verslunum Hagkaups, Bónuss og Nettó.
Núna er 20% Black Friday-afsláttur af öllum vörum á Happatreyjur.is út 1. desember!
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/48/1694839.jpg)










