Stjórnarformaður Landsvirkjunar hættir sem forstjóri
Brynja Baldursdóttir, stjórnarformaður Landsvirkjunar, hefur látið af störfum sem forstjóri Greiðslumiðlunar Íslands, en félagið er dótturfélag Ása, sem er móðurfélag fyrirtækja eins og Símans, Öryggismiðstöðvarinnar, OK Billboard og Greiðslumiðlunar Íslands.
Brynja hefur gegnt starfi forstjóra frá árinu 2021, en í tilkynningu Ása til Kauphallarinnar kemur fram að unnið sé að ráðningu eftirmanns hennar. María Björk Einarsdóttir, forstjóri Ása, mun sinna starfinu þangað til.
„Ég vil þakka Brynju fyrir gott samstarf undanfarna mánuði. Undir hennar stjórn hefur reksturinn gengið vel og félagið ráðist í umfangsmikla stafræna umbreytingu með tilheyrandi lækkun rekstrarkostnaðar og bættum árangri í innheimtu. Hún leiddi félagið sömuleiðis í gegnum kaup Ása með góðum árangri,“ er haft eftir Maríu í tilkynningunni.
„Ég er þakklát fyrir tímann hjá Greiðslumiðlun Íslands og stolt af þeim árangri sem við höfum náð saman. Ég vil þakka frábæru samstarfsfólki fyrir samstarfið og óska þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi innan Ása,“ er haft eftir Brynju.
Undanfarið hefur Brynja talsvert verið til umfjöllunar í fjölmiðlum í tengslum við ákvörðun Harðar Arnarsonar, fyrrverandi forstjóra Landsvirkjunar, að segja upp störfum. Sagðist hann ekki hafa notið nægs trausts í starfi sínu frá stjórn félagsins, en ný stjórn var skipuð nýverið. Hefur nokkuð verið deilt um ástæður starfslokanna síðan.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗