Tveir særðir eftir skotárás í skóla í Serbíu
Sautján ára nemandi hóf skothríð í framhaldsskóla í Serbíu í dag og særði tvo starfsmenn, að sögn lögreglu.
Lögreglan sagðist hafa yfirbugað og handtekið árásarmanninn, sem væri „grunaður um að hafa beitt riffli í skólasalnum“ í bænum Kragujevac í miðju landinu.
„Tveir slösuðust, annar að öllum líkindum af völdum skots og hinn af glerbrotum,“ en engir nemendur meiddust, bætti lögreglan við. Ástæða skotárásarinnar er enn óljós.
Skotárásir í skólum eru sjaldgæfar í Serbíu, en fólk í landinu var harmi slegið árið 2023 þegar 13 ára nemandi myrti níu nemendur og öryggisvörð í grunnskóla í Belgrad.
Drengurinn var vistaður á geðdeild þar sem hann var of ungur til að sæta refsiábyrgð. Faðir hans var dæmdur í 14 ára og sex mánaða fangelsi, en móðir hans hlaut tæplega þriggja ára dóm.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗