Feðgar lágu óvígir eftir árás í Mjóddinni – „Hann er sofandi bró“
Þrjú ungmenni eru með stöðu sakbornings vegna alvarlegrar líkamsárásar á feðga í Mjóddinni í Breiðholti að kvöldi 26. september. Eitt þeirra er grunað um að hafa slegið brotaþola í höfuðið með glerflösku.
Vísir greinir frá þessu í morgun og hefur undir höndum myndskeið sem sýnir feðgana liggja óvíga á götunni á meðan ungur maður, sem virðist hafa tekið þátt í árásinni, hæðist að þeim.
Fimm til tíu ungmenni á aldrinum 14 til 20 ára voru á svæðinu þegar árásin átti sér stað. Erjur höfðu staðið yfir um nokkurt skeið milli sonarins og hópsins en faðirinn var á staðnum til að liðsinna syni sínum.
Vísir segir að á myndskeiðinu sjáist sonurinn liggja blóðugur á götunni þar sem hann virðist meðvitundarlaus. Faðir hans liggur skammt frá.
„Hann er sofandi bró,“ öskrar sá sem tekur myndskeiðið samkvæmt frétt Vísis.
Feðgarnir munu sem betur fer ekki hafa hlotið varanlegan skaða af völdum árásarinnar.
Sigrún Kristín Jónasdóttir lögreglufulltrúi segir í samtali við Vísi að rannsókn málsins miði vel. Einn sakborninganna þriggja hafi þó ekki enn mætt í skýrslutöku.
Sigrún minnir á að eitt högg geti orðið mannsbani.
„Það er sorglegt að horfa upp á þetta. Þrátt fyrir fræðslu og forvarnarstarf virðist ákveðinn hópur ungmenna taka því léttúðlega að beita ofbeldi.“
Í frétt Vísis kemur fram að feðgarnir séu með íslenskt ríkisfang en faðirinn af erlendum uppruna. Þá séu gerendurnir allir með íslenskt ríkisfang en flestir af erlendum uppruna.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗